Þessari upplýsingasíðu er haldið úti af barnavöruversluninni www.barnavorur.is sem sérhæfir sig í taubleium, meðgöngu og brjóstagjafafatnaði. Verið velkomin í vefversluna okkar, við erum sérfræðingar í taubleium
Af hverju taubleiur og hvað eru taubleiur?
Eflaust tengja margir taubleiur einungis við gömlu gasbleiurnar/gubbuklútana sem notaðar voru að mestu leiti áður en einnota bleiurnar komu á markað. Þær voru brotnar saman á séstakan hátt til þess að hentaði barninu og bleiubuxur settar yfir.
Margir kjósa ennþá þennan kost enda sá ódýrasti og þægilegur t.d. fyrir þau nýfæddu. Margar taubleiur í dag eru einnig orðnar mun fullkomnari og nútímalegri en áður fyrr. Þær eru nú orðið yfirleitt formaðar eins og einnota bleiur og geta vart talist flóknari í notkun.
Hér á eftir er lesefni um taubleiur, mismunandi tegunir taubleia og kosti þeirra. Við hvetjum alla þá sem eru forvitnir um taubleiurnar að lesa áfram.
Þú skiptir um sirka 6.000 bleiur yfir bleiutímabil barnsins þíns. Hversvegna ætti maður ekki að hugsa um umhverfið og spara peninga?
Á bleiutímabili barnsins fer það í gegnum um það bil 6.000 bleiur. Þessu fylgir gríðarlegt magn af rusli/úrgangi. Með því að meðvitað velja taubleiur ertu að skapa betri veröld fyrir barnið þitt.
*********************************************************************************
Nokkrir af kostum þess að nota taubleiur:
- Sparnaður. Sem dæmi kosta 15 stk af Englabossa taubleiunum 38.250 kr. (á 2.550 kr. stykkið). Þessi upphæð er fljót að koma í bleiupökkum af einnota bleium. Sjá einnig okkar útreikninga.
- Umhverfisvænna. Þrátt fyrir aukið vatn og rafmagn við að þvo taubleiur er það umtalsvert umhverfisvænna en framleiðslan og sorpið af þeim einnota. Svo ekki sé minnst á það hversu hreinlegra og umhverfisvænna það er að sturta hægðum í salernið og þvo þær í þvottavél en að henda þeim með sorpinu.
- Það er næstum jafn auðvelt að nota vasableiur og pappírsbleiur. Það eina sem þú þarft að gera í viðbót er að stinga þeim í þvottavélina.
- Betra fyrir barnið. Þær innihalda ekki efni sem notuð eru við framleiðslu pappírsbleianna og margir telja slæm. Vegna þess að þær “anda”, eða hleypa lofti í gegnum sig, valda þær síður bleiuútbrotum en pappírsbleiurnar. Þær eru einnig mýkri og þægilegri.
- Hugsanlega hætta börnin fyrr að nota bleiu ef þau nota taubleiur. Margir foreldrar telja að vegna þess að börnin finni frekar á sér að þau séu blaut ef þau nota taubleiur, hætti þau fyrr að nota þær en ella.
*********************************************************************************
Reikningsdæmi:
Pappírsbleiur sem kosta 35 kr. stykkið:
Miðað við 6 bleiur á dag kostar árið 75.600 kr.
Miðað við 8 bleiur á dag kostar árið 100.800
Til samanburðar kosta:
15 stk af Snata taubleiunum 38.250 kr
15 stk af Happy Heinys (einlita) 55.200 kr
Það borgar sig að nota taubleiur, jafnvel þó svo að þú finnir ódýrar pappírsbleiur!
Athugið að 6-8 bleiur á dag er það sem meðalbarn notar af bleium. Þegar þau eru sem yngst nota þau yfirleitt mun fleiri (jafnvel 10-12 bleiur á dag fyrst um sinn).
Ýtarlegri útreikningar eru hér
*********************************************************************************
Hversu margar bleiur þarf ég að eiga?
Það fer auðvitað eftir því hversu oft á að þvo. Þægilegast er að eiga nægilega margar bleiur til þess að þvo annan eða þriðja hvern dag. Það þýðir að gott er að eiga bleiur fyrir tvo til þrjá daga, ásamt því að gera ráð fyrir þurrktíma.
Þumalputtareglan er að börn noti 6 – 8 bleiur á dag, en það getur minnkað þegar þau eldast og verið meira á meðan þau eru mjög ung.
Hægt er að komast vel af með 12 – 18 bleiur. En margir kjósa að eiga 18 – 24 stykki. Þetta miðast þá við hverja stærð, ef nota á bleiur sem koma í mismunandi stærðum.
Ef notuð eru cover/bleiubuxur (með tilsniðnum bleium) þarf mun færri af bleiubuxunum. 4 – 6 stykki ættu að vera nóg. En oftast er miðað við sirka 4 bleiur með hverjum bleiubuxum.
*********************************************************************************
Til eru ýmsar gerðir af taubleium. Hér eru útskýringar á þeim helstu:
Gasbleiur/ Muslin Squares/ gubbuklútar
Þetta eru bleiurnar sem eldri kynslóðin notaði að mestu leyti. Þetta eru einnig bleiurnar sem margir þekkja undir nafninu “gubbuklútar” og nota t.d. á öxlina á meðan börnin eru lítil og það gúlpast mikið upp úr þeim. Margir kjósa ennþá að nota þessa tegund bleia, sérstaklega fyrir þau nýfæddu. Það er aðallega vegna þess að aðrar bleiur kunna að vera of stórar, en einnig vegna þess hversu ódýr kostur þessar bleiur eru. Þessar bleiur eru brotnar saman á ákveðin hátt, settar utan um barnið og festar með öryggisnælu eða svokölluðum snappi festingum. Síðan eru bleiubuxur settar yfir. Eftir notkun er bleian sett í þvott en hægt er að nota buxurnar aftur þar til þær verða skítugar.
Hér er hægt að kynna sér bleiubrot fyrir gasbleiur: The Diaper Hyena, Dy-Dee folding, Born to love
Prefolds bleiur
Þessar bleiur líkjast gasbleiunum, en þær eru hannaðar þannig að það þarf lítið að brjóta þær saman. Þær eru oftast mjög rakadrægar. Oft eru þær úr hampi, bambus eða bómull. Þessar bleiur eru settar utan um barnið, festar með öryggisnælu eða snappi festingum, og bleiubuxur (cover) sett utan yfir. Eftir notkun er bleian þvegin en hægt er að nota buxurnar áfram þar til þær verða skítugar.
Þessar bleiur hafa marga notkunarmöguleika, líkt og gasbleiurnar, því þær er einnig hægt að brjóta saman og nota sem innlegg í vasableiur eða fitted (tilsniðnar) bleiur.
Fitted bleiur (tilsniðnar bleiur)
Þessar bleiur eru tilsniðnar og líkjast venjulegum pappírsbleium. Þær eru yfirleitt mjög rakadrægar. Oft er þeim lokað með riflás eða smellum, en stundum öryggisnælu eða snappi. Nauðsynlegt er að nota cover/bleiubuxur yfir þesskonar bleiur. Þær geta bæði verið one-size ( í einni stærð sem hentar flestum) eða í mismunandi stærðum (t.d. s/m/l). Bleiurnar sjálfar eru þvegnar eftir hverja notkun. En coverin/bleiubuxurnar geta notast oftar. Fitted bleiur geta verið úr ýmsum efnum, t.d. bómullarflannel, microfiber, hampi og bambus. Til þess að auka við rakadrægni þessara bleia er hægt að setja innlegg inn í bleiuna næst barninu. Sumar fitted bleiur eru einnig með vasa til þess að stinga í innleggi.
Cover/ Bleiubuxur
Notast yfir fitted bleiur (tilsniðnar bleiur), gasbleiur eða prefolds bleiur. Þau eru yfirleitt úr PUL (vatnsheldu efni), ull eða flísefni. Ekki er nauðsynlegt að þvo coverin eftir hverja notkun.
Vasableiur
Eru einar vinsælustu taubleiurnar. Þær eru einnig líkar pappírsbleium. Þær hafa vatnshelt ytra birgði, og yfirleitt flísefni eða suede cloth að innan. Á milli þessara tveggja laga er svo stungið innleggjum sem draga vökvann í sig. Innleggin geta verið úr t.d. bómull, microfiber, hampi, bambus eða öðru rakadrægu efni. Hægt er að nota fleiri en eitt innlegg í þessar bleiur til þess að auka rakadrægni. Þær eru yfirleitt festar með riflás eða smellum. Þessar bleiur eru oftast fyrirferðaminnstar af öllum taubleiunum. Þær geta bæði verið í nokkrum stærðum og one-size (ein stærð sem hentar flestum). Vasableiur þarf að þvo eftir hverja notkun, bæði bleiuna sjálfa og innlegg.
All in one bleiur/AIO (allt í einni)
Eru nákvæmlega það, allt í einni bleiu. Þær eru eins einfaldar og pappírsbleiur, og frábærar í dagvistunina. Vatnshelda ytra birgðið og rakadræga innra birgðið er saman í einni bleiu. Í stað innlegsins í vasableiunum er rakadræga efnið saumað í bleiurnar. Margar þeirra hafa auka vasa fyrir auka innlegg sé þess óskað. Þær eru oftast til í nokkrum stærðum. Þessar bleiur þarf að þvo eftir hverja notkun, og taka lengstan tíma að þorna (stundum kallaðar þurrkarableiur).
All in two bleiur
Er ný tegund bleia. Þær eru í raun bleiubuxur (cover) og tilsniðin (fitted) bleia/innlegg. En það sem gerir bleiuna að All in two bleiu er að hægt er að smella bleiunni /innlegginu inn í bleiubuxurnar og gera hana þar með að “All in one” bleiu. En einnig er hægt að nota bæði bleiubuxurnar og bleiuna/innleggið í sín hvoru lagi. Kosturinn við þessa tegund bleia er að hægt er að smella bleiunni úr buxunum eftir notkun (skella henni í þvott) en nota buxurnar aftur fyrir næstu bleiu, þar til buxurnar eru orðnar skítugar.
Innlegg
Innlegg geta verið úr ýmsum efnum. Algengast er að þau séu úr microfiber, hampi, bambus eða bómull. Það eru innleggin sem eru rakadrægnin í vasableium. En innlegg er einnig hægt að nota til þess að auka rakadrægnina í tilsniðnum (fitted) bleium með því að bæta þeim í bleiuna næst barninu, eða í vasa.
Viscose pappír og hríspappír
Þessi pappír er notaður til þess að setja innan í bleiuna næst barninu og “grípa” hægðirnar. Þá er hægt að taka pappírinn, með hægðunum og sturta í salernið. Bæði viscose- og hríspappír eiga það sameiginlegt að brotna auðveldlega niður í náttúrunni og þess vegna er í lagi að sturta honum í salernið. Pappírinn er framleiddur sem einnota pappír en getur þó enst í nokkur skipti.
Hríspappírinn er mun stífari og getur því enst í fleiri skipti. Hann getur einnig farið bæði í þvottavél og þurrkara.
Viscose pappírinn hefur þann kost að hann er mun mýkri viðkomu en hann endist styttra. Hann þolir um það bil tvö skipti í þvottavél á lágum hita, en þolir ekki þurrkara.
*********************************************************************************
Hvernig skal velja?
Það getur jafnvel verið betra að notast við fleiri en eitt taubleiukerfi til þess að mæta öllum þörfum, í stað þess að halda sig við eina taubleiutegund.
Þó svo að bleiufrumskógurinn virðist stór – Er hann alls ekki eins stór og þú heldur!
1. Kíktu yfir lesefnið okkar
2. Finndu þær bleiutýpur sem þú heldur að henti þér (vasableiur, AIO bleiur, gasbleiur, tilsniðnar bleiur..)
3. Prufaðu eina til tvær bleiur af þeim sem þú heldur að þú munir fíla
4. Vittu til – Þú þekkir þig best og veist nokkurn vegin hvað þér muni lika eftir að hafa lesið þig aðeins til
5. Ekki hlusta á alla hina sem segja þér að kaupa þetta en ekki hitt osfrv. Fólk hefur ofboðslega mismunandi skoðanir á þessu sviði. Þetta er mikið smekksatriði. Þessvegna er langbest að fara einungis eftir eigin sannfæringu og prufa það sem manni þykir líklegast að manni eigi eftir að líka við. Þó svo að “allir” segi að ein ákveðin tegund sé best er alls ekki víst að þér eigi eftir að líka hún!
Það sem hafa þarf í huga við valið er t.d.:
Þurrkunaraðstaða: Ef þurrkari er ekki til staðar getur verið betra að notast við bleiur sem þorna hratt, t.d. vasableiur og sumar tilsniðnar bleiur, t.d. ImseVimse flónelbleiur og JamTots eezi-fold.
Hversu fyrirferðamiklar þær eru: Bleiurnar eru mis fyrirferðamiklar. Margir vilja eins fyrirferðalitlar bleiur og mögulegt er. Þetta skiptir minna máli þegar um nýfætt barn er að ræða.
Vasableiurnar eru yfirleitt fyrirferðaminnstar en einnig eru til fyrirferðalitlar tilsniðnar (fitted) bleiur eins og t.d. JamTots Eazi-fold bleian. All in one bleiur eru oft fyrirferðamiklar en t.d. Drybees bleiurnar eru nettar.
Hversu rakadrægar: Börn sem pissa mikið þurfa rakadrægara efni, t.d. hamp eða bambus. Hampur og bambus eru mjög rakadræg efni en taka lengri tíma að þorna en microfiber.
Hversu auðveldar í notkun: Vasableiur og All in one bleiur eru mjög auðveldar í notkun og henta því oft betur en annað á leikskólann/til dagmömmunnar. Margir kjósa einnig frekar bleiur með riflás en smellum vegna þægindanna. En það er að sjálfsögðu smekksatriði.
Vil ég eiga bleiur sem stækka með barninu (one size bleiur) eða bleiur í stærðum? En bleiur í einni stærð eru mjög oft of stórar á nýbura. Einnig stækka sum börn upp úr þessum bleium því þær eru mis stórar.
