Þessari upplýsingasíðu er haldið úti af barnavöruversluninni www.barnavorur.is sem sérhæfir sig í taubleium, meðgöngu og brjóstagjafafatnaði. Verið velkomin í vefversluna okkar, við erum sérfræðingar í taubleium
1. Mig langar að nota taubleiur. En hvar byrja ég?
Fyrst af öllu er gott að mynda sér skoðun um það hvaða bleiukerfi hentar barninu þínu. Þá getur verið gott að skoða samanburðartöfluna á taubleiukerfum og skýringarnar á taubleiuhugtökum.
Einnig getur verið gott að skoða greinina: Eftir hverju sækist þú eftir í taubleium?
Þegar þú hefur valið þér hvaða taubleiukerfi þú villt byrja á getur þú skoðað tékklistann fyrir taubleiur.
Svo getur þú skoðað vörulistann í netversluninni okkar, www.barnavörur.is, til þess að byrja að versla. Vefverslunin okkar hefur allt sem þú þarft til þess að byrja að nota taubleiur. Einnig erum við með öruggt greiðslukerfi, og hægt er að versla hjá okkur á hvaða tíma sólarhringsins sem er! Einnig er velkomið að hafa samband við okkur (barnavorur@barnavorur.is) til þess að fá að skoða vörurnar eða fá frekari upplýsingar.
2. Ég hef ekki tíma í taubleiur! Hvernig farið þið súpermömmur að þessu?
Að foreldrar hafi ekki tíma í taubleiur er algeng staðhæfing.
Margir halda því fram að einungis “súpermömmur” sem helst eru heimavinnandi séu þær einu sem hafi tíma í taubleiur. En það er ekki rétt.
Sífellt fleiri foreldrar velja taubleiur og finnst það ekkert mál!
Ef þér finnst þú ekki hafa tíma í það að bjóta saman gasbleiur eins og mamma/amma gerðu í gamla daga, veldu þá taubleiur sem eru einfaldar.
Til eru margar tegundir af nútímalegum taubleium sem einmitt eru hannaðar þannig að þær séu jafn einfaldar og einnota bleiurnar, og taki sem minnstan tíma.
Vasableiur sem eru einar algengustu bleiurnar virka þannig að innleggið er ekki fast í. Það sem þarf að gera aukalega við þær er að troða innlegginu inn í bleiuna fyrir notkun. þetta er hægt að gera yfir sjónvarpinu við margar bleiur í einu og geyma þær tilbúnar.
“All in two” bleiur eru þannig að þú smellir innlegginu eða bleiunni innan úr buxunum og setur nýtt í staðinn.
All in one bleiur eru einfaldastar og vinsælastar fyrir þá sem telja sig hafa engan tíma fyrir taubleiur. Þær virka alveg eins og einnota bleiurnar. Þær eru tilbúnar til notkunar og festast beint á barnið og eru teknar af í heilu lagi eftir notkun.
Ok. Hvað þarftu í raun að gera í viðbót?
1. Þegar þú tekur bleiuna af er betra að henda hægðum í salernið ef hægt er. Það er samt sem áður ekki ástæða til þess að óhreinka sig eða valda áhyggjum. Það sem gott er að gera er að hrista bleiuna aðeins yfir klósettinu, eða einfaldlega renna hægðunum af í klósettið ef hægt er.
En ef barnið mitt er með linar hægðir? Já, það kemur fyrir og þá getur þurft að skafa aðeins með klósettpappír. Ef sturtuhausinn nær að salerninu er einnig hægt að smúla bleiuna ofan í salernið.
Þetta ætti í raun einnig að gera við einnota bleiur þar sem að hægðirnar valda mengunum á landsvæðum þar sem þeim er hent. Hægðir eiga í raun að fara í klóakið.
En þrátt fyrir að betra og umhverfisvænna sé að koma hægðunum í salernið ráða þvottavélarnar engu að síður við töluvert magn af óhreinindum. Prufaðu að stilla þvottavélina á forskol áður en þú þværð.
2. Svo þarftu að geyma bleiurnar. Þú getur geymt þær í þurrum dalli í þvottahúsinu eða í lokuðum PUL poka. Ekkert aukalega þar.
3. Svo þarf að þvo. Þetta er oft ein auka vél á sirka tveggja daga fresti. En hversu erfitt er í raun að þvo þvott. Þú hendir honum í vélina og hún gerir alla vinnuna. Svo tekurðu út úr henni þegar hún er búin, hengir upp eða setur í þurrkarann. Engin vinna!
Þannig að taubleiur eru alls ekki bara fyrir “súpermömmur” heldur fyrir allar mömmur og pabba, afa og ömmur, frænkur og frændur og alla þá sem sjá um barnið þitt.
3. Tékklisti fyrir taubleiur – Hvað vantar?
Hvað þarf ég að eiga til þess að byrja að nota taubleiur?
Gott er að styðjast við eftirfarandi lista:
Bleiur
Gott er að eiga 18-24 bleiur (í hverri stærð ef þær eru í stærðum) – Hægt er að komast af með færri ef maður þvær oftar.
Bleiubuxur/cover
6-8 bleiubuxur fyrir nýbura og 4-6 fyrir eldri börn (ef nota á bleiubuxur)
Oft er miðað við að hægt sé að nota 4 bleiur með hverjum bleiubuxum. En nýburar geta þurft að skipta oftar um bleiubuxur.
Innlegg
20-26 innlegg er gott að eiga, og þar með talið nokkur góð og extra rakadræg (t.d. úr hampi eða bambus) fyrir næturnar (ef nota á taubleiur eingöngu). Þá eru með talin innleggin sem oftast fylgja með vasableium.
5 mjög rakadræg næturinnlegg ef um er að ræða börn sem pissa mikið.
Bleiufata/PUL poki
Nauðsynlegt er að eiga opna bleiufötu (t.d. plastdall) til þess að geyma notuðu bleiurnar í á meðan þær bíða eftir þvotti.
Aðrir kjósa að nota stóran PUL poka til þess að minnka lykt í þvottahúsinu/baðherberginu.
Einnig getur verið gott að nota PUL poka ofan í bleiufötu.
Festingar
1-3 Snappi festingar (einungis nauðsynlegt fyrir þá sem ætla að nota gasbleiur, prefolds bleiur eða aðrar bleiur sem festa þarf með festingu, t.d. JamTots eazi-fold bleiuna)
PUL pokar/litlir PUL pokar/ferða PUL pokar
Gott er að eiga 2 stykki (til þess að geta þvegið þá með bleiunum)
Þvottastykki
Um það bil 20 þvottastykki – eða meira
Einnota pappír/hríspappír/viscose pappír
Mörgum finnst það þægilegt (valkostur og mörgum sem eru vanir að nota einnota bleiur finnst þægilegt að byrja með pappír í bleiunum til þess að grípa hægðirnar)
Hreinsiúði og bossakrem
Það getur verið þægilegt að eiga hreinsiúða, bæði fyrir morgunpissið sem getur verið lyktsterkt og fyrir bleiuskipti þegar maður er á ferðinni.
Einnig er gott að eiga bossakrem sem nota má með taubleium ef þörf er á því, t.d. Grandma El´s bossakremið.
Þvottaefni fyrir taubleiur
Einnig valkostur.
Crunchy Clean þvottaefnið er sérhannað fyrir taubleiur og inniheldur engin bleikiefni, ensím eða annað sem getur farið illa með taubleiurnar. Einnig er það umhverfisvænt.
En nauðsynlegt er að nota þvottaefni án bleikiefna og ensíma ef notaðar eru bleiur með flísefni/minkee efni/suede cloth efni.
Ullarsápa/Ólífusápa eða önnur sápa sem þvo má ull með ef notaðar eru ullarbuxur
Ullarkúr eða lanólín til þess að vatnsþétta ullarbuxurnar, séu þær notaðar.
4. Af hverju flísefni, suede cloth efni eða minkee efni, en ekki einungis náttúrulegu efnin (bómull, hamp ofl)?
Hverjir eru kostir þess að nota bleiu sem gerð er úr flísefni eða suedecloth efni?
Þessi efni halda vatninu frá húð barnsins, og halda barninu þannig þurrara. Þegar hægðir eru í bleiunni losnar hann auðveldlega frá bleiunni, og er þannig hægt að sturta í salernið. Þannig koma síður blettir.
5. Hvort eru smellur eða riflásar betri kostur?
Riflásar eru mjög þægilegir þegar hafa þarf hraðar hendur að skipta á börnunum. Einnig er þægilegt að stilla bleiur með riflás þar sem ekki þarf að “hoppa” um smellustillingar heldur er hægt að festa hann hvar sem er.
Hins vegar geta eldri börn fljótt uppgötvað hvernig hægt er að ná bleium með riflás af sér og riflásinn getur einnig festst í öðrum þvotti í þvottavélinni eða safnað í sig kuski sem getur verið pirrandi.
Smellur gera bleiuskiptin ekki eins fljótleg en eru hins vegar mjög góðar fyrir eldri börn sem eru fljót að koma sér úr bleiu með riflás.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta eins og allt annað – Smekksatriði.
6. Hvaða efni eru notuð í taubleiur, og af hverju er hampur notaður?
Smá skýringar við þau efni sem koma oftast fyrir þegar rætt er um taubleiur:
Polyurethane laminate (PUL):
Sérstakt polyster efni sem gert hefur verið vatnshelt, en andar samt sem áður. Oft notað í bleiubuxur en einnig sem ytra birgði í vasableium og AIO bleium.
Það var upprunalega hannað í læknisfræðilegum tilgangi. En þar sem það er svo mjúkt, meðfærilegt og vatnshelt er það fullkomið fyrir taubleiur. Þar sem það var hannað fyrir gufuofna þola flest þessi efni þurrkara og mikla notkun.
Flísefni:
Flís er 100% polyestar og er til í mismunandi þykktum. Þykkt flíefni/útivistarflíefni (heavyweight) hefur vatnshelda eiginleika sem gerir það frábært í bleiubuxur.
Létt flísefni eins og microflís hleypir rakanum í gegnum sig en helst tiltölulega þurrt við húð barnsins. Það er því mjög gott í innsta lag bleiu, eða sem innlegg til þess að halda barninu þurru (stay-dry). Það hrindir einnig frá sér óhreinindum.
Flísefni var fyrst framleitt árið 1979 af Malden Mills (Polartec). Þetta var nýtt og létt efni sem átti að líkjast ull. Flíefni hefur marga sömu góðu eiginleika og ullin en er mun léttara.
Flísefni er gert úr svokölluðu PET (Polyethylene terephthalate). Um 30%* af flísframleiðslu heimsins er gert úr endurunnum plastflöskum. Úr PET eru gerðir örþunnir fíberþræðir sem efnið er svo unnið úr.
Suede cloth:
Efnið er aðeins þykkara en microflís efni en hefur marga sömu eiginleikana. Það heldur barninu þurru með því að hleypa rakanum í gegn um sig en haldast tiltölulega þurrt, og hrindir frá sér óhreinindum. Suede cloth helst einnig fallegt lengur en microflís.
Microfiber:
Microfiber er venjulega 75% polyester og 25% polyamide, og er frábært efni í innlegg. Það fangar vætuna og getur dregið í sig upp undir 8 sinnum þyngd sína í vökva. Efnið er létt og þunnt, fljótt að þorna og verður rakadrægara með notkun. En forðist þó að setja microfiber næst húð barnsins þar sem það þurrkar húðina.
Ull:
Hún er gerð vatnsheld með því að “lana” hana. Þá er hún látin liggja í og draga í sig lanolín og fitu. Hún er oft notuð í bleiubuxur þar sem hún andar einstaklega vel og heldur jöfnum hita á barninu, ekki of heitt og ekki of kalt.
Ullarbuxur (cover) eru oft taldar hentugustu næturbuxurnar. Hún getur dregið í sig upp undir 30% af þynd sinni án þess að virðast blaut. Ullin er náttúrulega bakteríueyðandi og það þarf ekki að þvo hana eins oft og önnur efni. Jafnvel þó svo að ullin þarfnist sérstakrar meðhöndlunar er alls ekki erfitt að þvo hana.
Hampur:
Hampur er mjög sterkt efni. Flest hampefni er 55% hampur og 45% bómull. Það gerir hampinn mýkri og meðfærilegri. hamp- og bómullarefni er sterkara, endingarbetra og rakadrægara en bómull í sömu þyngd. Hampur er einnig náttúrulega bakteríueyðandi.
Bambus:
Er eitt nýjasta efnið á taubleiumarkaðnum. Það er mjög rakadrægt, silkimjúkt og helst töluvert mjúkt þvott eftir þvott. Bambusinn er líka umhverfisvænn.
Bómullar Sherpa:
Mjög mjúkt bómullarefni sem er æðislegt næst barninu. Það er mikið notað bæði í bleiur og þvottaklúta.
Bómullar frotté
Mjög rakadrægt bómullarefni sem líkist handklæði.
Bómullar flónel
Mjúk og góð bómull sem góð er næst barninu, en er ekki eins rakadræg og frotté og sherpa.
Smellur:
Smellur á bleium eru gerðar úr sérstöku plastefni, sem ólíkt málmsmellum ryðgar ekki og væta hefur ekki áhrif. Þær halda þrátt fyrir mikla notkun og þvotta, en flestar þola ekki suðu.
Af hverju er hampur notaður í bleiur?
Hampur getur verið þunnur en samt sem áður mjög rakadrægur sem gerir hann fullkominn fyrir taubleiur.
Oft eru bleiur, t.d. JamTots, gerðar úr blöndu af hampi og lífrænni bómull sem gerir þær mjúkar og rakadrægar, sem samt sem áður liprar.
7. Eru taubleiur ekki dýrar?
Góðu fréttirnar eru þær að taubleiur spara þér helling af peningum til lengri tíma litið.
Taubleiur er hægt að nota aftur og aftur, ekki einungis fyrir fyrsta barnið þitt, heldur fyrir næstu börn einnig.
Þú ert að spara um það bil 150 þúsund krónur yfir bleiutímabil fyrsta barnsins, og enn meira með því að nota þær áfram.
En ég hef heyrt að sparnaðurinn fari fyrir lítið þegar tekið er tillit til þess að maður þarf að þvo þær og jafnvel þurrka (rafmagn)?
Það er alls ekki rétt, og sérstaklega ekki á Íslandi þar sem rafmagn er ódýrt og umhverfisvænt.
Í þessari tölu 150.000 sem við tilgreindum að ofan gerðum við ráð fyrir því að bleiurnar væru þvegnar og þurrkaðar í þurrkara í hverjum þvotti.
Við notuðum tölur frá Orkuveitu Reykjavíkur (www.or.is) fyrir rafmagnskostnað þvottavélar og þurrkara.
Einnig tókum við mið af því að nota í hvert skipti Crunchy Clean þvottaefnið.
Viðmiðið okkar var að eiga 20 stk Snata taubleiur og þvo annan hvern dag.
Við gerðum ráð fyrir því að barn notaði taubleiur í 3 ár. Sem er algengur aldur til að hætta með bleiu.
En með því að kaupa dýrari bleiur, t.d. 20 stk Happy Heinys, verður sparnaðurinn um 130 þúsund.
Þess má geta að enn meira sparast við það að nota taubleiurnar áfram fyrir næsta barn. En þá er enginn startkostnaður, a.m.k. mun minni.
8. Hversu oft þarf ég að skipta um bleiu á taubleiubarninu mínu?
Hversu oft þarf ég að skipta um bleiu á barninu mínu þegar það notar taubleiur?
Ég hef heyrt að maður þurfi að skipta miklu oftar um bleiu þegar barnið notar taubleiur en einnota bleiur.
Við mælum með bleiuskiptum á 2-3 tíma fresti. En það fer eftir því hversu rakadrægar bleiur þú notar og hversu mikið barnið þitt pissar. Sumir geta skipt sjaldnar t.d. á 3-4 tíma fresti.
Þegar börn nota einnota bleiur er oft hægt að skipta sjaldnar en það þýðir samt ekki að það sé betra fyrir barnið.
Það er betra fyrir barnið að skipta aðeins oftar en sjaldnar til þess að minnka líkur á útbrotum.
Hampur og bambus eru mjög rakadræg efni og hamp- og bambusinnlegg er hægt að nota til þess að auka rakadrægni bleianna, og þar með tímann sem barnið getur verið með sömu bleiuna (eins og á nóttunni).
9. Hverskonar taubleiur get ég notað á nóttunni?
Þarf ég að nota annars konar taubleiur á nóttunni?
Þegar kemur að því að nota taubleiur á nóttunni, hugasaðu rakadrægni!
Hampur og bambus eru frábær efni fyrir næturnar þar sem þau eru mjög rakadræg en samt sem áður nett.
Ef barnið þitt pissar mikið er gott að nota auka innlegg, t.d. úr hampi eða bambus.
Hvert barn er einstakt og hversu mikla rakadrægni þarf á nóttunni fer einnig eftir því hversu gamalt það er.
Við mælum með því að þú prufir að setja meira í bleiuna en þú heldur að þú þurfir og prufa það yfir nótt. Að morgni geturðu athugað og séð hversu mikið er eftir þurrt, ef eitthvað er, og þá prufað að hafa aðeins minna næstu nótt.
Með þessu móti ættirðu ekki að lenda í blautum náttfötum og lökum.
Prufaðu þig áfram þar til þú finnur úr hversu mikla rakadrægni barnið þitt þarf á nóttunni.
Algengar næturbleiur eru hampbleiur með auka hamp- eða bambusinnleggjum og ullarbleiubuxur utan yfir. Ullarbuxur eru góðar þar sem þær anda vel og lofta vel um barnið og bleiuna.
En mörgum finnst gott að nota t.d. vasableiu með auka innleggjum.
10. Get ég notað taubleiur á ferðinni?
Hvað með þegar ég fer út úr húsi? Get ég notað taubleiur þegar ég fer í heimsóknir eða ferðalög?
Taubleiur er hægt að nota hvert sem maður fer. En áður en þú ferð út pakkaðu þá öllu sem þú þarft í skiptitösku með bleium (gott er að vera búin að troða vasableiur með innleggjum þannig að allt sé tilbúið), bleiubuxum (ef þú notar slíkar), þvottaklútum, PUL poka og hreinsiúða eða vatni í brúsa. Einnig getur verið þægilegt að vera með skiptiundirlag, og bossakrem ef þú notar slíkt. Þá ertu tilbúin!
Engin þörf er á því að nota einnota bleiur á ferðinni. – Auðveldlega er hægt að nota taubleiur og hugsaðu um allt fólkið sem þú hittir á ferðinni sem þú getur sýnt flottu taubleiurnar þínar!
En þegar barnið fer á dagvistun (í leikskóla eða til dagmömmu)?
Ekki vera hrædd við að segja frá því að barnið noti taubleiur, og spyrja hvort það sé nokkuð vandamál?
Flestir leikskólar í dag eru með einhver taubleiubörn. Taubleiur eru sívaxandi í vinsældum og alltaf fleiri börn í dagvistun sem nota taubleiur.
Með því að krefjast þess að þitt barn fái að nota taubleiur hjá dagmömmunni eða á leikskólanum ertu að ryðja brautina fyrir taubleium sem því miður njóta ennþá tortryggni frá mörgum.
11. Hvernig kem ég í veg fyrir bleiuútbrot?
Við hver bleiuskipti er gott að þrífa bleiusvæði barnsins vel. Við mælum með margnota þvottaklútum og vatni eða hreinsiúðanum frá Happy Heinys (Heinys Sprey). Svo er nauðsynlegt að þurrka húðina.
Þegar kostur er á er gott að láta barnið vera án bleiu til þess að lofta vel um svæðið.
Ef þú þarft að nota bossakrem mælum við með því að þú notir kremin sem má nota með taubleiu (sérstaklega ef nota á vasableiur, AIO bleiur eða aðrar bleiur með flísefni/suede cloth efni/ minkee efni).
Einnig getur verið gott að setja kartöflumjöl á húð bleiusvæði barnsins. Kartöflumjöl þurrkar húðina og kemur þannig í veg fyrir bleiuútbrot. Það er sérstaklega sniðug lausn ef barnið er með sveppasýkingu því þá er alls ekki æskilegt að nota hefðbundin bossakrem.
Ég hef heyrt að börn fái frekar bleiuútbrot ef þau nota taubleiur?
Það virðist ekki vera rétt.
Það hafa verið gerðar kannanir erlendis sem sýna að börnum með bleiuútbrot hafi farið umtalsvert fjölgandi eftir að einnota bleiurnar komu á markað.
Það sem helst gerir að verkum að börn fái bleiuútbrot er að bleytan liggur of lengi upp við húðina.
Að minnsta kosti helmingur allra barna fá bleiuútbrot að minnsta kosti einu sinni yfir bleiutímabilið.
Það geta líka verið aðrar ástæður fyrir bleiuútbrotum svo sem ofnæmi, sveppasýking eða erting vegna ertandi efna. Einnig geta útbrot stafað af því að börnin séu að prufa nýja fæðu (eldri börnin). Sumar fæðutegundir geta aukið hægðir og þannig ert.
Taubleiur anda líka betur um húðina og yfirleitt skipta foreldrar taubleiubarna oftar um bleiu. Þessvegna hefur verið talið að taubleiubörn fái síður bleiuútbrot.
Hér má finna lesefni á ensku:
Real diapers Association
Cloth vs. disposable diapers
12. Bleian mín lekur. Hvað geri ég þá?
Það geta verið nokkrar ástæður fyrir því að bleian leki. T.d. þessar:
1. Ný bleia.
Þegar bleiur eru nýjar getur þurft að þvo þær og þurrka nokkrum sinnum áður en þær verða nægilega rakadrægar. Þetta á sérstaklega við um hamp og bambus, en oft er talað um að þessi efni þurfi að minnsta kostil 5 þvotta áður en þau ná há hámarks rakadrægni.
En sumar vasableiur geta þurft 2 þvotta áður en þær verða nægilega rakadrægar. Hér er það þolinmæðin sem skiptir máli.
2. Athugaðu innleggið.
Innleggið þarf að liggja vel í alla kanta. Ef þú hefur undirbúið bleiuna og hún krumpast þannig að innleggið krumpast inn í henni áður en hún er notuð getur það verið ástæða fyrir leka.
Ef innleggið hefur verið í dágóðan tíma í bleiunni, bleian lekur, og þegar þú tekur hana af er hún þung og innleggið inn í henni gegnblautt þá getur verið að það innlegg sé ekki nóg. Þá gæti þurft annað innlegg eða að skipta oftar á barninu ef tök eru á (2-3 tíma fresti ætti þó að vera eðlilegt yfir daginn).
3. Ef innleggið reynist þurrt við athugun þarftu að athuga hvort þvottaefnið innihaldi bleikiefni eða mýkingarefni sem geta gert flísefni vatnshelt.
Einnig geta stílar og zink krem gert bleiurnar vatnsheldar. Þá getur þú þurft að “strippa” bleiurnar. Það er hægt að gera með því að blanda saman uppþvottalegi og vatni og spreyja því í flísefnið, nudda vel, og þvo svo vel í þvottavélini með auka skoli.
Einnig getur þetta verið vegna of mikillar þvottaefnisnotkunar. Þá getur líka verið gott að þvo bleiuna 2-3 sinnum í röð án þvottaefnis og fylgst með því að engar sápukúlur séu í vélinni.
4. Bleian getur verið of stór
Ef bleian eða bleiubuxurnar eru of stór þá getur lekið meðfram lærunum.
13. Þessar taubleiur eru alger frumskógur. Hvað heita allar þessar tegundir og hver er munurinn?
Til eru ýmsar gerðir af taubleium. Hér eru útskýringar á þeim helstu:
Gasbleiur/ Muslin Squares/ gubbuklútar
Þetta eru bleiurnar sem eldri kynslóðin notaði að mestu leyti. Þetta eru einnig bleiurnar sem margir þekkja undir nafninu “gubbuklútar” og nota t.d. á öxlina á meðan börnin eru lítil og það gúlpast mikið upp úr þeim. Margir kjósa ennþá að nota þessa tegund bleia, sérstaklega fyrir þau nýfæddu. Það er aðallega vegna þess að aðrar bleiur kunna að vera of stórar, en einnig vegna þess hversu ódýr kostur þessar bleiur eru. Þessar bleiur eru brotnar saman á ákveðin hátt, settar utan um barnið og festar með öryggisnælu eða svokölluðum snappi festingum. Síðan eru bleiubuxur settar yfir. Eftir notkun er bleian sett í þvott en hægt er að nota buxurnar aftur þar til þær verða skítugar.
Hér er hægt að kynna sér bleiubrot fyrir gasbleiur: The Diaper Hyena, Dy-Dee folding, Born to love
Prefolds bleiur
Þessar bleiur líkjast gasbleiunum, en þær eru hannaðar þannig að það þarf lítið að brjóta þær saman. Þær eru oftast mjög rakadrægar. Oft eru þær úr hampi, bambus eða bómull. Þessar bleiur eru settar utan um barnið, festar með öryggisnælu eða snappi festingum, og bleiubuxur (cover) sett utan yfir. Eftir notkun er bleian þvegin en hægt er að nota buxurnar áfram þar til þær verða skítugar.
Þessar bleiur hafa marga notkunarmöguleika, líkt og gasbleiurnar, því þær er einnig hægt að brjóta saman og nota sem innlegg í vasableiur eða fitted (tilsniðnar) bleiur.
Fitted bleiur (tilsniðnar bleiur)
Þessar bleiur eru tilsniðnar og líkjast venjulegum pappírsbleium. Þær eru yfirleitt mjög rakadrægar. Oft er þeim lokað með riflás eða smellum, en stundum öryggisnælu eða snappi. Nauðsynlegt er að nota cover/bleiubuxur yfir þesskonar bleiur. Þær geta bæði verið one-size ( í einni stærð sem hentar flestum) eða í mismunandi stærðum (t.d. s/m/l). Bleiurnar sjálfar eru þvegnar eftir hverja notkun. En coverin/bleiubuxurnar geta notast oftar. Fitted bleiur geta verið úr ýmsum efnum, t.d. bómullarflannel, microfiber, hampi og bambus. Til þess að auka við rakadrægni þessara bleia er hægt að setja innlegg inn í bleiuna næst barninu. Sumar fitted bleiur eru einnig með vasa til þess að stinga í innleggi.
Cover/ Bleiubuxur
Notast yfir fitted bleiur (tilsniðnar bleiur), gasbleiur eða prefolds bleiur. Þau eru yfirleitt úr PUL (vatnsheldu efni), ull eða flísefni. Ekki er nauðsynlegt að þvo coverin eftir hverja notkun.
Vasableiur
Eru einar vinsælustu taubleiurnar. Þær eru einnig líkar pappírsbleium. Þær hafa vatnshelt ytra birgði, og yfirleitt flísefni eða suede cloth að innan. Á milli þessara tveggja laga er svo stungið innleggjum sem draga vökvann í sig. Innleggin geta verið úr t.d. bómull, microfiber, hampi, bambus eða öðru rakadrægu efni. Hægt er að nota fleiri en eitt innlegg í þessar bleiur til þess að auka rakadrægni. Þær eru yfirleitt festar með riflás eða smellum. Þessar bleiur eru oftast fyrirferðaminnstar af öllum taubleiunum. Þær geta bæði verið í nokkrum stærðum og one-size (ein stærð sem hentar flestum). Vasableiur þarf að þvo eftir hverja notkun, bæði bleiuna sjálfa og innlegg.
All in one bleiur/AIO (allt í einni)
Eru nákvæmlega það, allt í einni bleiu. Þær eru eins einfaldar og pappírsbleiur, og frábærar í dagvistunina. Vatnshelda ytra birgðið og rakadræga innra birgðið er saman í einni bleiu. Í stað innlegsins í vasableiunum er rakadræga efnið saumað í bleiurnar. Margar þeirra hafa auka vasa fyrir auka innlegg sé þess óskað. Þær eru oftast til í nokkrum stærðum. Þessar bleiur þarf að þvo eftir hverja notkun, og taka lengstan tíma að þorna (stundum kallaðar þurrkarableiur).
All in two bleiur
Er ný tegund bleia. Þær eru í raun bleiubuxur (cover) og tilsniðin (fitted) bleia/innlegg. En það sem gerir bleiuna að All in two bleiu er að hægt er að smella bleiunni /innlegginu inn í bleiubuxurnar og gera hana þar með að “All in one” bleiu. En einnig er hægt að nota bæði bleiubuxurnar og bleiuna/innleggið í sín hvoru lagi. Kosturinn við þessa tegund bleia er að hægt er að smella bleiunni úr buxunum eftir notkun (skella henni í þvott) en nota buxurnar aftur fyrir næstu bleiu, þar til buxurnar eru orðnar skítugar.
Innlegg
Innlegg geta verið úr ýmsum efnum. Algengast er að þau séu úr microfiber, hampi, bambus eða bómull. Það eru innleggin sem eru rakadrægnin í vasableium. En innlegg er einnig hægt að nota til þess að auka rakadrægnina í tilsniðnum (fitted) bleium með því að bæta þeim í bleiuna næst barninu, eða í vasa.
Viscose pappír og hríspappír
Þessi pappír er notaður til þess að setja innan í bleiuna næst barninu og “grípa” hægðirnar. Þá er hægt að taka pappírinn, með hægðunum og sturta í salernið. Bæði viscose- og hríspappír eiga það sameiginlegt að brotna auðveldlega niður í náttúrunni og þess vegna er í lagi að sturta honum í salernið. Pappírinn er framleiddur sem einnota pappír en getur þó enst í nokkur skipti.
Hríspappírinn er mun stífari og getur því enst í fleiri skipti. Hann getur einnig farið bæði í þvottavél og þurrkara.
Viscose pappírinn hefur þann kost að hann er mun mýkri viðkomu en hann endist styttra. Hann þolir um það bil tvö skipti í þvottavél á lágum hita, en þolir ekki þurrkara.
****
Hvernig skal velja?
Það getur jafnvel verið betra að notast við fleiri en eitt taubleiukerfi til þess að mæta öllum þörfum, í stað þess að halda sig við eina taubleiutegund.
Það sem hafa þarf í huga við valið er t.d.:
Þurrkunaraðstaða: Ef þurrkari er ekki til staðar getur verið betra að notast við bleiur sem þorna hratt, t.d. vasableiur.
Hversu fyrirferðamiklar þær eru: Bleiurnar eru mis fyrirferðamiklar. Vasableiurnar eru yfirleitt fyrirferðaminnstar en einnig eru til fyrirferðalitlar tilsniðnar (fitted) bleiur eins og t.d. JamTots Eazi-fold bleian.
Hversu rakadrægar: Börn sem pissa mikið þurfa rakadrægara efni, t.d. hamp eða bambus. Hampur og bambus eru mjög rakadræg efni en taka lengri tíma að þorna en microfiber.
Hversu auðveldar í notkun: Vasableiur og All in one bleiur eru mjög auðveldar í notkun og henta því oft betur en annað á leikskólann/til dagmömmunnar. Margir kjósa einnig frekar bleiur með riflás en smellum vegna þægindanna. En það er að sjálfsögðu smekksatriði.
Vil ég eiga bleiur sem stækka með barninu (one size bleiur) eða bleiur í stærðum? En bleiur í einni stærð eru mjög oft of stórar á nýbura. Einnig stækka sum börn upp úr þessum bleium því þær eru mis stórar.
