Upplýsingar um taubleiur

Hversu umhverfisvænar eru taubleiur í samanburði við þær einnota?
Einnota bleian

Fyrsta einnota bleian var fundin upp árið 1942. Hún samanstóð af pappír sem settur var innan í gúmmíbuxur. Á árunum1970 og 1980 var vanalegasta einnota bleian ferhyrnd bleia úr sellulósa sem fest var með bleiuklemmu. Það var ekki fyrr en 1984 sem rakadræga efnið sem nú er notað í einnota bleiur var fundið upp.

Ef við reiknum með að barn noti 2.000 bleiur á ári, þá notar það 5.000 bleiur á bleiutímabilinu ef það er 2 og hálft ár, en 6.000 bleiur ef tímabilið eru 3 ár (sem er algengt).

Það fer eftir stærð bleiunna hversu mikið hún vegur en það er á milli 30 og 50 grömm stykkið. Á tveggja og hálfs árs bleiutímabili sínu notar eitt barn því um það bil 200 kg af bleium.

Bleiur eru stór hluti heimilisúrgangs. Til samanburðar eru þær í Svíþjóð um það bil 2% af öllu heimilissorpi.

Lítil orka vinnst við það að brenna einnota bleiurnar þar sem þær eru illa til þess fallnar.

Ekki er nákvæmlega vitað hversu lengi bleiur eru að eyðast í náttúrunni en samkvæmt rannsóknum er áætlað að það séu 250 til 500 ár.[1]

Í dag eru það einnota bleiurnar sem notaðar eru að mestu leiti í vesturlöndum. Taubleiunotkun hefur þó aukist töluvert síðustu ár. Hvort taubleiur eru betri eða verri kostur er spurningin sem oft  er rædd. Taubleiur eru umhverfisvænni ásamt því að vera mun ódýrari kostur (helmingur eða minna af því verði sem einnota bleiurnar kosta yfir bleiutímabilið).

Það eru þó til rannsóknir sem styðja það að einnota bleiur séu umhverfisvænni kostur. Þessar rannsóknir eru nánast undantekningarlaust kostaðar af pappírsbleiuframleiðendum. Þær byggja á því að orkunotkunin við að þvo og þurrka taubleiurnar geri þær óumhverfisvænni. Þess má þó strax geta að þá staðreynd er auðveldlega hægt að hrekja, sjá neðar, ásamt því að orka á Íslandi er bæði ódýr og umhverfisvæn.

Úr hverju eru pappírsbleiur

Næst húð barnins er sérstakt plast sem líkist ofnu efni sem hleypir raka í gegnum sig. Oftast eru líka plastrenningar upp við læri barnsins til þess að bleiurnar leki ekki. Þar á eftir kemur sérstakt efni, oftast polypropen, sem á að dreyfa vökvanum í bleiunni.

Kjarni pappírsbleiunnar er sellulósi sem blandað er við ofur rakadrægt efni, yfirleitt úr polyakríl, sem líkist litlum kornum sem geta dregið í sig 25 til 100 sinnum sína eigin vikt af vökva.Vatnið bindst við polyakríl efnið og þannig virkar bleian þurr viðkomu. Þegar þessar kúlur eru þurrar eu þær þurr korn og líkjast t.d. sykri, en þegar þær blotna verða þær eins og gel.

Að utan hefur einnota bleian svo plast sem heldur rakanum inni og oftast andar.

Mestur hluti bleiunnar er sellulósi. Í framleiðslu hans eru ýmis efni notuð t.d. súlfat. Svo er þetta bleikt í nokkrum skrefum. Bleikiefnin eru t.d. klóroxíð sem talið er mjög óumhverfisvænt.

Tilhneigingin hefur verið að gera bleiurnar minni um sig og léttari. Sem dæmi voru bleiurnar fyrir nokkrum árum 60 g að meðaltali en eru nú 40 g. Þetta er gert með því að auka ofur rakadræga efnið og minnka sellulósan.

Taubleiur

Efnin sem notuð eru í taubleiur eru oft einnig bleikt. En þar sem hvert barn notar svo fáar taubleiur yfir tímabilið (einungis örfá prósent af því sem það myndi nota af einnota bleium) eru umhverfisáhrifin mun minni.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að það eru efnin sem notuð eru til framleiðslu einnota bleianna sem  mest áhrif hafa á umhverfið, ásamt sorpinu sem af þeim hlýst. Notkun einnota bleianna sjálfra hefur minnst áhrif á umhverfið.

Með taubleiur er það einmitt öfugt. Það er notkun þeirra, þvottur og þurrkun, sem mest áhrif hefur á umhverfið. Framleiðsla þeirra hefur mun minni áhrif (til muna færri bleiur) og ekkert sorp hlýst af þeim, ásamt því að hægðunum er skolað niður í klóakið þar sem þær eiga að fara.

Merkingar á einnota bleium

Allskyns merkingar eru á einnota bleium. Fæstar þeirra eru umhverfismerkingar. Flestar merkingarnar standa fyrir því hverskonar plast notað er í pakkningarnar.

Tvær algengustu umhverfismerkingarnar á norðurlöndunum er Svansmerkingin og Bra miljöval.

Svansmerkingin

Hún er stærst á norðurlöndunum. Bleiur sem merktar eru því merki þurfa að uppfylla ákveðnar kröfur við framleiðsluna. Fáar bleiur hafa þessa merkingu.

Bra miljöval

Flestar bleiur á markaðnum eru langt frá því að geta staðist þær kröfur sem gerðar eru með þessari merkingu.

Aðrar merkingar

Oft er t.d. endurvinnslumerkingin á pökkunum. Það segir ekkert um bleiurnar heldur bara það að hægt er að endurvinna pakkninguna.

Heilbrigðisáhrif bleia

Margar rannsóknir hafa verið gerðar sem sýna fram á heilbrigðisáhrif bleia. Þýskar rannsóknir frá árinu 2000 hafa sýnt fram á það að mögulega geti einnota bleiur haft áhrif á sæðisframleiðslu drengja til framtíðar. Bleian verður blaut og heldur rakanum inni. Hún virkar því þannig að hún hækkar hitastigið á eistunum sem getur haft áhrif á sæðisframleiðsluna til framtíðar.[2]

Bandarísk rannsókn frá árinu 1999 sýndi fram á það hvaða áhrif þrjár gerðir af einnota bleium höfðu á mýs.[3] Stór hluti músanna varð fyrir áhrifum á öndunarhraða og ertingu í öndunarfærum og lungum. Áhrifin jukust með endurtekinni nálægð við bleiurnar. Með taubleiur mældust einungis mjög litlar breytingar. Við efnisfræðilega rannsókn á einnota bleiunum fundust mörg efni sem eru mjög slæm fyrir öndunarfærin. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að ákveðnar einnota bleiur geti verið ein af orsökum mikillar aukningar á barnaastma á síðustu árum. Meðal efnanna sem fundust í bleiunum voru efni sem eru þekkt eiturefni í umhverfinu og sum þeirra jafnvel bönnuð t.d. í Svíþjóð. Hinsvegar var þessi rannsókn gerð í Bandaríkjunum, en bandarískar bleiur innihalda oft lyktarhamlandi efni, ilmefni, eldvarnarefni ofl. Einhverjar bandarískar bleiur eru á Íslenskum markaði en höfundur er ekki viss um efnislýsingu þeirra.

Greenpeace gerði aðra rannsókn í Þýskalandi árið 1999. Bleiur sem þar voru rannsakaðar innihéldu efnið TBT (tributyltenn) sem  haft getur áhrif á hormónaframleiðslu. TBT er t.d. notað sem eitur í garðrækt. Þetta efni fannst í sellulósanum í bleiunum. Samkvæmt Pampers var magnið svo lítið að það samkvæmt þeirra sögn á það ekki að hafa áhrif á heilsufar og í nýlegri rannsókn sem gerð var á 11 bleiutegundum fannst efnið einungis í einni þeirra.

Í sænskri rannsókn frá árinu 2004 voru einnota bleiur bornar saman við taubleiur. Beðið var um upplýsingar frá framleiðanda eða innflytjanda um efni bleianna og aðra þættir við framleiðslu og flutning til neytanda. Meðal bleianna sem voru skoðaðar voru Pampers, Libero, Euroshopper, Änglamark, Bambo og ImseVimse taubleiur. Sem hliðarrannsókn fengu nokkrar fjölskyldur að að prufa bleiurnar og meta þær samvkæmt fyrirfram ákveðnum stöðlum.[4]

Niðurstöðurnar af hliðarrannsókninni voru þær að fjölskyldunum fannst einnota bleiurnar fremur líkar. Sumir lentu í næturleka, aðrir í roða og útbrotum á ákveðnum tegundum sem hætti þegar hætt var að nota þá tegund.

Umhverfisáhrif ImseVimse taubleianna reyndust vera minnst. Umhverfisáhrifin sem þó verða eru til muna minni ef notast er við rétt magn þvottaefnis, ef þvegið er á umhverfisvænan máta (ekki hálfar vélar, og ekki á of háu hitastigi), sem minnst notaður þurrkari og ef umhverfisvænt þvottaefni er valið.

Einnota bleiurnar sem merktar voru með Svaninum reyndust mun umhverfisvænni en þær sem ekki voru þannig merktar, ásamt því að auðveldara reynist að fá upplýsingar frá þeim framleiðendum.

Niðurstaða sænsku rannsóknarinnar

Umhverfisvænastar eru taubleiurnar. Til þess að hafa sem allra minnst umhverfisáhrif er best að kaupa bleiur sem framleiddar eru úr lífrænum efnum.

Við taubleiunotkun er gott að hafa eftirfarandi punkta til hliðsjónar til þess að hafa minnst áhrif á umhverfið:

þvo alltaf fullar vélar

þvo ekki á hærra hitastigi en 60 gráðum (en þvo þá sjaldan á 90 gráðum ef maður vill)

nota umhverfisvænt þvottaefni

nota ekki of mikið af þvottaefni (ofnotkun á þvottaefni er mjög algeng)

þvottaefni í duftformi þrífur betur en fljótandi efnin

notið ekki mýkingarefni (gerir taubleiuna verri) eða ljósvirk bleikiefni (óumhverfisvænt og gerir bleiuna verri)

Hengið frekar bleiurnar upp en að þurrka þær í þurrkara eða þurrkskáp (þurrkarar og þurrkskápar eru orkufrekir og þessvegna er umhverfisvænna að sleppa þeim)

Samantekt

Tölulegar niðurstöður rannsókna sem sýna fram á það að taubleiur séu jafn skaðlegar umhverfinu og einnota bleiur gera ráð fyrir umtalsvert meiri orkunotkun við þvott og þurrkun en ástæða er til að gefa sér. Einnig gera þær ekki ráð fyrir umhverfisvænni orku eins og á Íslandi. Ekki virðist heldur tíðkast að  rannsóknir taki tillit til spillingar umhverfissins vegna sorpsins sem hlýst af einnota bleiunum heldur er yfirleitt einungis verið að bera saman umhverfisspillingu við framleiðslu einnota bleianna og orkunotkun við notkun taubleianna.

Ef taubleiur eru notaðar er því augljóst að þær eru mun umhverfisvænni. Með því að þvo þær og þurrka á réttann hátt eru þær mjög umhverfisvænar hvort sem gæna orka Íslands er notuð eða önnur.

Gott er að hafa í huga að sé ein taubleia notuð á dag í stað einnar einnota bleiu eru það 365 bleiur á ári, sem gera um það bil 14,6 kg af sorpi. Ef 1.000 börn myndu nota eina taubleiu á dag yrðu það 14.600 kg af sorpi sem myndu sparast.

Hver notuð taubleia skiptir máli!

[1] Link, Ann.  Disposable nappies: a case study in waste

prevention.  April 2003.  Women’s Environmental Network.

[2] Arch dis child, 2000:83

[3] Anderson, 1999 (Archives of environmental health, 1999)

[4] Jan Wijkmark, 2004.

Heimildir

Anderson & Anderson, 1999: Acute respiratory effects of diaper emissions

Edana, 2001: Diapers, Health Benefits and Environmental Aspects

Jan Wijkmark. Blöjor och miljö; en miljögranskning av sju olika sorters barnblöjor, 2004. VERNA Ekologi AB

Nordisk miljömärkning, 2000: Miljömärkning av mjukpapper

Nordisk miljömärkning, 2001: Miljömärkning av hygiejneprodukter

Procter & Gamble, 2001-2003: diverse LCA-material

SCA 2002: Livscykelanalyser på SCA Hygiene product

Svenska Naturskyddsföreningen, 1994: Miljökriterier för blöjor och liknande produkter

Link, Ann.  Disposable nappies: a case study in waste prevention.  April 2003.  Women’s Environmental Network.

http://www.realdiaperassociation.org/diaperfacts.php

www.bambo.com

www.environ.se

www. imsevimse.se

www.kemi.se

www.libero.nu

www.pampers.com

www.svanen.nu

Samanburðartafla á tegundum taubleia
Samanburður á bleiutegundum.

Tegund

Kostar

Umhirða

Plúsar

Mínusar

Prefolds bleiur, eða gasbleiur, og bleiubuxur (cover)

Þvæst vel og þornar fljótt.

Bleiubuxur (cover) er hægt að nota áfram, með fleiri bleium, þannig að það þarf ekki eins margar af þeim.

Prefolds bleiur og gasbleiur er hægt að nota á marga vegu. Þær er hægt að nota sem bleiur með eða án festinga. En er einnig hægt að nota sem innlegg eða gubbuklúta.

Hægt er að nota með þeim innlegg til þess að gera þær rakadrægari.

Það gæti þurft að skipta oftar á barninu til þess að koma í veg fyrir leka.

Ekki formaðar eins og bleiur (tilsniðnar).

Ekki eins handhægt og hinar tegundirnar – og tvennt sem þarf að setja á barnið.

Heldur hugsanlega kúkasprengjunum ekki eins vel og formaðar bleiur með teygjum.

Tilsniðnar bleiur og bleiubuxur (cover)

Auðvelt að þvo.

Bleiur með íföstum eða ísaumuðum innleggjum (sem ekki er hægt að draga út) eru lengur að þorna.

Auðveldari í notkun en prefolds og gasbleiur – þarf ekki að brjóta saman. Bara smella, festa riflás eða festa með snappi festingum. Síðan eru bleiubuxur settar yfir.

Rakadrægnin fer eftir efninu. Hampur er rakadrægari en bómullarflónel. En hægt er að nota innlegg til þess að auka rakadrægnina.

Margar eru til í fleiri stærðum, en ekki einungis í einni stærð (one size).

Ekki eins þægilegt og önnur kerfi. – Tveir hlutir sem þarf að koma á barnið.

All-in-one (AIO)

Þar sem þessar bleiur eru með áföstum bleiubuxum eykur það þurrktímann. Nema innleggið sé smellt í þannig að hægt sé að þvo buxurnar sérstaklega (All in two).

Bleiur sem ekki er hægt að draga innleggin út á eru lengur að þorna.

Mjög notendavænar.

Bleia í heilu lagi gerir það að verkum að þær eru nákvæmlega jafn auðveldar og einnota bleiurnar.

Rakadrægnin fer eftir efninu. Hampur er rakadrægari en bómullarflónel.

Dýrara en kerfi í tveimur pörtum, nema notast sé við kerfi þar sem hægt er að smella úr innleggjunum/bleiunum, og smella nýju í.

Venjulegar bleiubuxur (cover) er þvegnar svo mikið að þær gætu slitnað hraðar.

Vasableiur

Auðveldar í notkun, og auðvelt að þvo og þurrka þar sem bleian sjálf og innleggið er aðskilið í þvotti (en þvegið í sömu vél).

Afar notaendavænar, og jafn auðveldar og þær einnota.

Hægt er að laga rakadrægnina með tilliti til þarfa barnsins.

Stay-dry innra birgði (flís/suede cloth) í bleiunni og það er ekkert annað sem snertir húð barnsins.

Rakadrægnin fer eftir efninu. Hampur er rakadrægari en bómullarflónel.

Dýrara kerfi nema notast sé við one size bleiur.

Tekið af síðu JamTots – www.jamtots.com – og þýtt yfir á íslensku

Meðhöndlun á ull
Meðhöndlun á ull og að “lana” ullina (vatnsverja)

Ullin er þess eðlis að það þarf ekki að þvo hana eftir hverja notkun. Í raun þarf mun sjaldnar að þvo ullarbuxur heldur en buxur úr t.d. PUL efni.

Það getur verið gott að hengja  ullarbuxurnar upp og viðra þær aðeins á milli notkunar.

Við t.d. notum okkar ullarbuxur eingöngu á nóttunni. Þá hengi ég þær upp á morgnanna og þær eru þá tilbúnar til notkunar aftur á kvöldin.

Þeir sem nota ullina á daginn eru stundum t.d. með tvær buxur í gangi og skiptast á að nota aðrar og viðra hinar.

Ef lítill blettur er í buxunum getur verið nóg að strjúka úr þeim.

En það kemur að því að það þarf að þvo ullina.

Athugið að lesa alltaf leiðbeiningar frá framleiðanda sem ritaðar eru á vöruna. Hversu oft þarf að þvo ullina er eitthvað sem maður finnur sjálfur þegar maður fer að nota hana.

Sumar ullarvörur má þvo í þvottavél, t.d. á ullarkerfi, aðrar þarf að þvo í höndunum. Best er að nota ullarsápur og gott getur verið að nota ullarsápur sem innihalda lanolin. Þannig er oft mögulegt að komast hjá því í lengri tíma að “lana” eða vatnsverja ullina.

Til þess að hægt sé að nota ullarbuxur sem bleiubuxur þarf oft að “lana” þær. Þetta getur jafnvel  þurft að gera áður en þær eru notaðar í fyrsta skipti. En þarf einnig að gera af og til þegar þörf er á.

Hvernig hægt er að sjá hvort ullin þarfnast þess að vera “lönuð”. Þegar þú ert að þvo ullina ýttu henni ofan í vatnið:

* Ef ullin situr ofan á vatninu, og vatnið smýgur ekki inn í efnið heldur safnast í polla ofan á því, þá þarf ekki að “lana” hana.

* Ef ullin situr ofan á vatninu, en einhverjir blettir á ullini eru þannig að vatnið dropar ofan á efninu og smýgur ekki inn í það, en smýgur inn í það annarsstaðar, þá getur verið gott að “lana” fljótlega.

* Ef ullin sekkur í vatnið og blotnar alveg þá er tími til komin að “lana”

Hvernig á að “lana” með lanolíni?

Hér er að finna góða kennslu á ensku ásamt myndum.

1. Byrjaðu á því að þvo ullina. Fylltu t.d. vask eða bala af volgu vatni með smá ullarsápu. Láttu ullina liggja í bleiti í sápuvatninu í um það bil fimm mínútur. Skolaðu svo ullina aftur upp úr volgu vatni.

2. Hægt er að nota bæði fljótandi og stíft lanolin. Til dæmis er hægt að nota brjóstakremið frá Lansinogh en það er hreint lanolin. Til þess að lanolinið fari sem jafnast í ullina er best að hrista það (í litlu íláti) með heitu vatni áður en það er sett út í vatnið með ullinni. Hægt er að nota t.d. krukku af barnamat.

3. Settu þá pínulítið lanolin (á stærð við baun) í lítið ílát. Fylltu það svo af heitu vatnið og hristu eða hrærðu það saman. Þetta ætti að verða jafn vökvi.

4. Fylltu svo vaskinn eða balann aftur af volgu vatni og legðu ullina í bleyti. Dreifðu lanolinblöndunni jafnt og rólega í vatnið.

5. Gott er að láta ullina liggja í bleyti í lanolínblöndunni í um það bil 15 mínútur, en má vera lengur.

6. Taktu svo ullina upp úr vatninu og kreistu úr henni vatnið. Leggðu hana svo til þerris.

Ennþá einfaldara er að nota ullarkúrinn frá Imse Vimse!

Um hamp, bambus og lífræna bómull
Hampur, bambus og lífræn bómull

Hampur og bambus eru mikið í umræðunni og hvort efnið sé betra. Það eru mismunandi skoðanir á málinu og hér ætla ég að setja fram það helsta sem um er rætt í þessu sambandi. En einnig er hér smá fróðleikur um lífræna bómull.

Ending og eiginleikar:

Hampur er mjög endingargott efni. Það hefur verið notað í allskyns fatnað og haldið vel. Hampurinn er sterkari og hefur betri UV vörn heldur en flest önnur efni.

Bambusefnið (bamboo fiber) hefur einungis verið á markaði frá því á síðustu árum 20. aldarinnar. Það er því ekki eins mikið vitað um endingu þess. En að minnsta kosti endist það vel eitt barn.

Hampurinn á það til að verða stífur þegar hann er hengdur til þerris. En hampurinn mýkist eftir því sem hann er oftar þveginn. Bambusefnið á hinn bóginn er mjög mjúkt og helst mjúkt eftir þvott.

Rakadrægni hamps og bambus er um  það bil sú sama. Bambusefni geta dregið meira í sig til þess að byrja með, en eftir að hampurinn hefur verið þvegin í nokkur skipti nær hann afbragðs rakadrægni.

Hampurinn þronar hraðar en bambusinn.

Umhverfið:

Lífræn bómull er ræktuð án þess að notað sé eitur. Bændurnir nota allskyns sniðugar leiðir í stað þess að nota tilbúna áburði. Gagnleg skordýr og aðrar leiðir en þær hefðbundnu við uppskeruna gera það að verkum að hægt er að komast hjá því að nota eitur.

Bambus vex mjög hratt líkt og illgresi, og er talin sú planta á jörðini sem vex hraðast. Bambus þarf enga áburði eða eitur til þess að vaxa og getur dafnað vel á rigningarvatninu eingöngu. Bambus gefur einnig af sér meira súrefni en tré.

Líkt og bambusinn vex hampplantan mjög hratt og þarf ekki áburði eða eitur til. Rigningarvatnið nægir einnig fyrir hampplöntuna. Hampur sem notaður er í iðnaði er ekki sá sami og sá ólöglegi. Hann inniheldur nánast ekkert af efninu THC sem sá ólöglegi gerir.

Bambus efnið er unnið úr beðmanum af plöntuni. Á það hefur verið bent að við framleiðsluna eru notuð óumhverfisvæn efni sem gera efnið ekki eins umhverfisvænt og við fyrstu sýn.

Brot fyrir prefolds bleiur
Bikini twist

Leggðu bleiuna slétta eins og þú ætlir að setja hana undir barnið. Snúðu svo bleiunni þannig að það komi einn snúningur í hana, og leggðu hana undir barnið og lagaðu hana til á milli fótana. Náðu í efnið sem er á bakvið og festu bleiuna með snappi festingu.

Festu snappi öðru megin og togaðu í festinguna á meðan þú heldur bleiunni fastri hinum megin, og festu svo þeim megin líka. Togaðu síðan í þriðja og síðasta hluta festingarinnar og festu hana niðri.

Þríbrot

Leggðu bleiuna niður og brjóttu aðra hliðina inn að miðjunni.

Brjóttu hina hliðina að miðjunni þannig að bleian passi inn í þær bleiubuxur (cover) sem þú ætlar að nota.

Leggðu bleiuna svo einfaldlega inn í bleiubuxurnar, settu svo barnið ofan á og festu buxurnar!

* En athugið að þetta er ekki besta brotið til þess að nota á yngstu börnin (nýfæddu brjóstabörnin) þar sem það heldur linu ungbarnahægðunum ekki eins vel inni og hin brotin.

Englavængjabrotið

Leggðu bleiuna niður og brjóttu báðar hliðar inn að miðju. Settu buxurnar síðan á milli fóta barnsins.

Togaðu endana á bakvið yfir á miðjuna og festu með öryggisnælu eða snappi bleiufestingu.

Eftir hverju sækist þú í taubleium?
Hvaða taubleiu maður velur veltur svolítið á því eftir hverju maður sækist…

Þessvegna er gott að lesa þessa grein yfir og mynda sér skoðun. En að sjálfsögðu geta fleiri en ein ástæða legið að baki því að maður noti taubleiur eins og raunin er með allt annað.

1. Sparnaður

Ert þú aðallega að hugsa um sparnaðinn, en ert ekki alveg viss hvort taubleiur henti þér?

Byrjaðu þá á því að kaupa eina eða tvær t.d. Snatableiur og athugaðu hvað þér finnst.

Ef þér líkar vel geturðu sent okkur tölvupóst á barnavorur@barnavorur.is og fengið að láta þá bleiu/bleiur ganga upp í startpakka.

Ef þú ert aðallega að hugsa um sparnaðinn, en villt að sjálfsögðu fá nothæfar, hagkvæmar og góðar vasableiur mælum við með þessum:

Snati taubleiur sem eru vasableiur í einni stærð (sem hægt er að stækka/minnka)

eða Imse Vimse bleiurnar eru hagkvæmar og endingargóðar. Þær samanstanda af tilsniðnum bleium sem fást bæði í stærð newborn fyrir minnstu börnin og svo stærð One size, í einni stærð sem passar fyrir mest allt bleiutímutímabilið.

Gasbleiur og bleiubuxur eru í flestum tilfellum ódýrasta lausnin

Sumir nota gasbleiurnar eingöngu með bleiubuxum. Við mælum með gasbleiunum frá MaM og Imse Vimse. Þær eru óbleiktar og mun stærri og rakadrægari en flestar aðrar gasbleiur.

Bleiubuxurnar frá Imse Vimse, og So simple frá Happy Heinys, eru þægilegar og hagkvæmar með gasbleiunum.  Margir kjósa einnig að nota fyrst, á meðan börnin eru minnst, gasbleiur, prefolds bleiur eða þessháttar vegna þess hversu ódýrar þær eru og einnig vegna þess að þegar börnin eru minnst getur verið að bleiurnar sem eru í einni stærð séu aðeins of stórar. Úrvalið okkar af gasbleium og prefolds bleium má finna hér

2. Umhverfisvernd og samfélagið

Ef þú hugsar um umhverfið og samfélagið, og ef þér finnst skipta mestu máli að vörurnar séu umhverfisvænar og stuðli að bættu samfélagi, þá mælum við með þessum: Babyidea – Mam design Fyrirtækið framleiðir m.a. vasableiur og hampbleiur. Það hefur Fair trade vottun (sanngjarnir viðskiptahættir) og notar að mestu leiti lífrænar vörur og einungis bestu fáanlegu efni.

3. Framleiðslulandið

Ef framleiðslulandið skiptir þig mestu máli og að það sé vestrænt, mælum við með þessum: Happy Heinys JamTots Sugar Peas og  Baby Kangas.

Sumar taubleianna okkar eru framleiddar í Kína.

Happy Heinys eru saumaðar af húsmæðrum í Bandaríkjunum sem vinna fyrir fyrirtækið. JamTots, Sugar Peas og Baby Kangas eru framleiddar í Kanada.

Babyidea fyrirtækið hefur Fair trade vottun og verksmiðja þeirra er í Evrópueigu en staðsett í Kína. Babyidea – Mam design Af gefnu tilefni bendum við áður á að þrátt fyrir að margar bleiurnar sem við eigum til séu framleiddar í Kína eru þær samt sem áður framleiddar eftir ströngustu gæðareglum.

Við leggjum mikið upp úr því að framleiðendur sem við verslum við séu traustir og vinni eftir gæðakröfum.

Vörumst sleggjudóma! Kína er mjög stórt land og þar eru fjöldamargar vörur framleiddar fyrir allan heim. Þar eru einnig virtar og góðar vörur framleiddar. Einnig vil ég benda á það að Fair trade vottun er alþjóðleg trygging fyrir sanngjörnum viðskiptaháttum.

Lesið meira um Fair trade vottun

3. Það besta og skotheldasta

Ef þú villt einungis það besta án þess að hafa áhyggjur af kostnaði mælum við t.d. með þessum gæðableium: Happy Heinys JamTots, Sugar Peas, Baby Kangas, Drybees,  Babyidea – Mam design, Imse Vimse.

Allar ofantaldar bleiutegundir eru framleiddar af traustum og verðlaunuðum fyrirtækjum. Þær eru framleiddar úr bestu fáanlegu efnum og hafa langan endingartíma.

4. Ekki flísefni

Hefur barnið þitt ofnæmi fyrir flísefninu í venjulegu vasableiunum? – Athugið að það er þó sjaldgæft.

Sum börn þola suede cloth efnið þá betur, og öfugt. Flestar okkar vasableiur eru með flísefni að innan, en Snati taubleiur eru með suede cloth.

5. Hvorki flísefni né suede cloth

Þolir barnið þitt illa bæði flísefni og suede cloth? – Athugið að það er sjaldgæft.

Sem betur fer er það ekki svo algengt. En í þeim tilfellum getur reynst best að nota aðsniðnar/fitted bleiur og bleiubuxur/cover utanyfir.

Við mælum með tilsniðnu bleiunum okkar Imse Vimse er mjög góður kostur fyrir þá sem vilja nota tilsniðnar bómullarbleiur og bleiubuxur.

Við mælum einnig hampbleium eins og: Happy Hempys, Hemp hour frá Babyidea og Sherpa bómullarbleiunni Heiny Huggers Sherpa.

Einnig má nota hamp- og bambusinnlegg næst barninu.

6. Smellur eingöngu

Sumir vilja einungis nota bleiur með smellum. Það er yfirleitt vegna þess að smellur hafa yfirleitt lengri endingartíma en riflás. Kusk getur festst í riflásnum og gert hann veikari. Þá þarf að hreinsa upp úr honum. Eftir lengri tíma, þegar hann er orðinn veikur, getur þurft að skipta um hann.

Ef þú villt bara bleiur með smellum mælum við með þessum: Snata vasableiur með smellum, Happy Heinys vasableiur með smellum, Grow hour vasableiur, Baby Kangas vasableiur.

7. Riflás

Sumir vilja bara bleiur með riflás. Yfirleitt er það vegna þess að auðvelt er að stilla bleiur með riflás, einnig hraðar það bleiuskiptum. Sumir geta einnig átt erfitt með að smella vegna handstyrks og þá getur verið betra að nota bleiur með riflás.

Ef þú villt bara bleiur með riflás (frönskum rennilás) mælum við með:

Happy Heinys með riflás, Snata Bambus með riflás, Drybees AIO bleium.

8. Á leikskólann eða til dagmömmunnar

Villtu eitthvað einfalt til að fara með á leikskólann eða til dagmömmunnar?

Þá getur verið gott að nota bleiur sem auðvelt er að setja á barnið. Þá eru bleiur með riflás vinsælli.

Einnig getur verið gott að nota ekki of margar tegundir í dagvistunina.

All in one bleiur/ allt í einni bleiu eru mjög þægilegar í notkun.

Við mælum með Drybees AIO bleium, Imse Vimse AIO bleium og Berry Plush í dagvistunina.

Einnig mælum við með PUL poka í dagvistunina. Algerlega nauðsynlegt fyrir taubleiur í dagvistun!

Pul pokar eru gerðir úr sama efni og ytra byrgði vasableianna. Pul efnið andar en er vatnshelt. Ef bleiur eru geymdar í plastpoka getur komið vond lykt og bleiurnar geta myglað ef þær gleymast í pokanum.

9. Á nóttunni – sem næturbleiur

Margir hræðast það fyrst um sinn að nota taubleiur á nóttunni og treysta þeim ekki. Það er algjör óþarfi að gefast upp á nóttunni.

Sumir nota vasableiur á nóttunni með tveimur innleggjum (til þess að auka rakadrægnina) með góðum árangri. Þetta er einnnig góð lausn þegar barnið sefur á daginn.

Á nóttunni reynst mörgum best, sérstaklega ef börnin pissa mikið, að nota tilsniðnar bleiur úr hamp- eða bambus og svo bleiubuxur sem anda vel.

Við mælum sérstaklega með ullarbuxum. Þær halda vætunni vel inni og anda best. Þá getur einnig verið gott að bæta hamp- eða bambusinnleggi inn í tilsniðnu bleiuna fyrir enn meiri rakadrægni ef um er að ræða ofurpissara.

10. Ertu algerlega óákveðin?

Hvernig væri að kaupa prufupakka og prufa margar tegundirnar af vasableium? Athugið líka að oft er hægt að selja notaðar bleiur og þessvegna getur verið sniðugt að prufa og selja svo þær sem manni líkar ekki við.

Athugið þó að fólk hefur misjafna reynslu og skoðanir á þessu eins og öllu öðru. Það eru alls ekki allar bleiur sem henta öllum börnum, og ekki allar bleiur sem henta öllum foreldrum.

Vandaðu valið og gangi þér vel að finna réttu bleiurnar!

Suða, taubleiur og bakteríur
Á ég að sjóða allar taubleiurnar mínar?

Við segjum nei. Af hverju?

Bæði flest PUL efni í vasableiunum og bleiubuxunum og teygjur þolir illa suðu, og sumar bleiur geta einfaldlega skemmst við það að vera soðnar eða þvegnar á mjög háu hitastigi. En hvað með bakteríur?

Með því að lesa mig aðeins til um bakteríur* hef ég komist að því að þær drepast á mismunandi hitastigum. Alls ekki allar við 95 eða 100 gráður. Margar drepast við 60 gráður. Sumar bakteríur drepast ekki fyrr en við 130 eða 140 gráður. En það eru sennilega bakteríur sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af í bleiunum okkar.

Svo er annað: Bakteríurnar eru á heimimilunum okkar nú þegar.

Þær finnast t.d. í tuskunum, handklæðunum og fötunum okkar. En skiptir það máli? Í flestum tilfellum skiptir það ekki máli. Auðvitað innan skynsamlegra marka. En ef við tökum mitt heimili sem dæmi þar sem reyndar tuskur eru soðnar en handklæði eru einungis þvegin á 60 gráðum og nærfatnaður á 40-60 gráðum. Samt sem áður erum við alls ekki oftar veik en aðrar fjölskyldur.

Margar af þessum bakteríum eru alls ekki hættulegar.

Hvað með þvottaefnið? Það drepur ekki allar bakteríurnar en það skolar margar í burtu.

En þessi vonda lykt

Eftir nokkurn tíma í notkun getur komið vond lykt af bleiunum.

Á morgnanna er hægt að finna sterka ammoníakslykt og börnin geta orðið rauð á bleiusvæðinu. Af hverju orsakast þetta?

Flestir telja að þetta orsakist af þvottaefni sem safnast upp í bleiunum. Bakteríur geta þá einnig hafa safnast upp og myndað þessa ammoníakslykt sem kemur af pissinu á morgnanna. Þetta er að sjálfsögðu ekki gott.

En hvað er til ráða?

Auðveldasta og fljótlegasta leiðin virðist vera að gera bleiurnar því sem næst sterílar.

Það er hægt að gera með nokkrum leiðum. Hér eru þær algengustu:

1. Að sjóða bleiurnar í potti í 15 mínútur.

En fáar bleiur þola það og við mælum alls ekki með því að þetta sé gert með t.d. vasableiur og PUL bleiubuxur nema framleiðandi ábyrgist að þær þoli suðuna.

2. Að “sjóða” bleiurnar í þvottavélinni á 95 gráðum.

Hafa skal í huga að þetta eru 95 gráður en ekki suða og því er þvottaprógramið líklega ekki eins áhrifaríkt og að sjóða bleiurnar í potti. Það sama gildir einnig um þetta ráð að ekki er ráðlagt að gera þetta við flestar bleiur, og t.d. ekki vasableiur og PUL bleiubuxur.

3. Að þvo bleiurnar upp úr bleikiefni.

Flestir taubleiuframleiðendur mæla þó gegn notkun á bleikiefnum því þau geta safnast fyrir í bleiunum. Þetta er því oftast ekki raunhæfur kostur.

4. Matarsódi og vínedik

Sumir nota matarsóda eða edik. Það skal þó alls ekki notast saman því að það virkar alls ekki vel saman. Edik getur festst í PUL efninu og það er alls ekki gott að nota of mikið af því. Margir taubleiuframleiðendur mæla bæði gegn notun bæði matarsóda og ediks.

Hvað er þá til ráða?

5. Hægt er að nota tee tree olíu í þvottinn.

Hún er lykteyðandi og bakteríudrepandi. En hún gerir þó ekki alla vinnuna. Ef hún er notuð verður að passa sig á því að nota alls ekki of mikið af henni því hún er jú olía og getur því safnast fyrir í bleiunni. Gott er að nota sirka 4-5 dropa í eina þvottavél.

6. Grape seed extract eða Þrúgukjarna er hægt að nota.

Hann er bakteríudrepandi eins og tee tree olían.

Hvað gerum við ef upp kemur vandamál (vond lykt og þess háttar)?

7. Við þvoum bleiurnar einfaldlega betur án þess að sjóða þær. -

einu sinni á sirka mánaðarfresti þvoum við bleiurnar á 3 þvotta prógrami (3 sinnum í röð)

Einu sinni með þvottaefni og smá tee tree olíu, og aukaskolun (ef til vill löngu þvottaprógrami ef hægt er), síðan aftur tvisvar sinnum í röð án þvottaefnis.

Þetta hefur virkað afar vel fyrir okkur og ammoníakslyktin sem eitt sinn mætti á svæðið með tilheyrandi roða á bleiusvæðinu hvarf eins og dögg fyrir sólu.

En þess má geta að við þvoum bleiurnar alls ekki svona að staðaldri, heldur einungis á sirka mánaðarfersti.

Best er að okkar mati að gera eftirfarandi að staðaldri:

1. Geyma aldrei bleiurnar lengur en í 3 daga án þess að þvo þær.

2. Geyma bleiurnar ekki í lokuðum plastpoka (poka sem ekki andar), eða lokuðu íláti.

3. Þvo ekki of margar bleiur í einu (ekki troðfylla þvottavélina).

4. Þvo þvottavélina reglulega. Mikilvægt er að þvo þvottavélina. Setja hana reglulega í gang á 95 gráður, t.d. til þess að þvo tuskur eða annað. Einnig er mikilvægt að þvo gúmmíhringinn í vélinni reglulega.

5. Þvo bleiurnar reglulega, t.d. einu sinni á mánaðar eða tveggja mánaða fresti, á þriggja þvotta prógrammi: Einu sinni með þvottaefni (í hóflegu magni) og ef til vill smá tee tree olíu eða Grape seed extract, og svo tvisvar sinnum án þvottaefnis þannig að allt þvottaefni og annað uppsafnað í bleiunum náist úr.

Orkusparnaður!

Það er einnig mikill orkusparnaður í því að þvo ekki alltaf á hæsta hitastigi.

* Þess má geta að ég er alls ekki alfróð í málefnum um bakteríur, heldur las mér til um það sem ég fann.

Endingartími taubleia
Margir velta því fyrir sér hversu lengi taubleiurnar eiga eftir að endast.

Það sem ég segi er: “Það eru allar líkur til þess að taubleiurnar verði löngu búnar að borga sig upp áður en þær verða ónýtar” – en hér er smá grein um málefnið.

Hversu lengi taubleiurnar endast veltir á ýmsum atriðum.  Hér eru nokkur þeirra

Það fer að sjálfsögðu bæði eftir taubleiutegund, gæðum og hvernig taubleiurnar eru þvegnar.

1. Fjöldi taubleia sem í notkun eru. Ef bleiurnar eru þvegnar á hverjum degi endast þær að sjálfsögðu styttra en ef þær eru þvegnar annan eða þriðja hvern dag.

2. Hvernig bleiurnar eru þvegnar. Bleiur sem þvegnar eru á hærra hitastigi endast oftast styttra en þær sem þvegnar eru á lægra hitastigi.

3. Gæði taubleianna, efni, teygjur, saumasakapur ofl.

4. Riflásar og smellur. Riflásar geta farið illa með tímanum. Gott er að plokka upp úr þeim með fingrunum eða plokkara þegar þeir eru orðnir skítugir. Smellur endast oft lengur. En það er þó ekki algilt.

Það er erfitt að setja tímasetningar á endingu taubleia. Sjálf hef ég ekki mikla reynslu ennþá, enda er stelpan mín (og mitt eina barn) einungis 10 mánaða þegar þetta er skrifað.

Margir fullyrða að bleiurnar hafi enst í 3 ár eða allt bleiutímabilið, jafnvel lengur eða 2-3 börn.

Aðrir segja að eitt ár sé góð ending á bleiu sem þvegin sé á hverjum degi.

Einungis tíminn leiðir þetta í ljós. Sumar af tegundunum sem við seljum hafa ekki langa reynslu á markaði og því er ómögulegt að segja nákvæmlega til um endinguna. Eitt er víst að mörg atriði spila inní.

Til þess að ná sem bestri og sem lengstri notkun úr taubleiunni þinni er best að fara eftir þvottaleiðbeiningum frá framleiðanda.

Hvað eru taubleiur?
Eflaust tengja margir taubleiur einungis við gömlu gasbleiurnar/gubbuklútana sem notaðar voru að mestu leiti áður en einnota bleiurnar komu á markað. Þær voru brotnar saman á séstakan hátt til þess að hentaði barninu og bleiubuxur settar yfir.

Margir kjósa ennþá þennan kost enda sá ódýrasti og þægilegur t.d. fyrir þau nýfæddu. Margar taubleiur í dag eru einnig orðnar mun fullkomnari og nútímalegri en áður fyrr. Þær eru nú orðið yfirleitt formaðar eins og einnota bleiur og geta vart talist flóknari í notkun.

Hér á eftir er lesefni um taubleiur, mismunandi tegunir taubleia og kosti þeirra. Við hvetjum alla þá sem eru forvitnir um taubleiurnar að lesa áfram.