Englabossar – taubleiur og fylgihlutir

Þessari upplýsingasíðu er haldið úti af barnavöruversluninni www.barnavorur.is sem sérhæfir sig í taubleium, meðgöngu og brjóstagjafafatnaði. Verið velkomin í vefversluna okkar, við erum sérfræðingar í taubleium :)

Englabossar (áður Snati) eru taubleiur sem við hjá Barnavörum.is látum sérsauma fyrir okkur

Við eigendurnir áttum stelpuna okkar á meðan við vorum (og erum enn) í námi. Við ákváðum að finna út hvaða bleiur hentuðu okkur best og láta sauma svoleiðis bleiur hagstætt fyrir okkur og alla aðra sem á þyrftu að halda.
Englabossar er afraksturinn.

Englabossar eru vasableiur úr svokölluðu PUL efni að utan, sem andar og er vatnshelt. Að innan er suede cloth efni sem er mjúkt, kemur vel út úr þvotti, og heldur barninu þínu þurru.
Á milli þessara tveggja laga er vasi þar sem stungið er í microfiber innleggi. Microfiberinn er góður þar sem hann getur dregið í sig margfalda þyngd sína af vökva. Með Snata vasableium fylgja 2 slík innlegg. Annað innleggjanna er stórt og er minnkanlegt með smellum þannig að það notast fyrir allar stærðir sem bleian hefur upp á að bjóða. Hitt innleggið er minna og er frábært sem auka innlegg þegar barnið þarf að vera lengur með bleiuna og þarf þessvegna auka rakadrægni.

Englabossar eru í einni stærð (one size) og eru hannaðar þannig að hægt er að nota smellurnar að framan til þess að minnka bleiuna. Þannig getur bleian notast í 3 stærðum (small, medium og large).

Small                          Medium                     Large

Englabossar fæst í nokkrum fallegum litum.

Englabossa bleiurnar eru ódýrar, fallegar og mikilvægast af öllu: Þær virka!

Englabossa hampinnlegg

Hampinnleggin er hægt að kaupa í stykkjatali, en þau fylgja einnig þegar keyptir eru Englabossa start-/magnpakkar. Þau eru úr rakadrægu efni úr hampi og bómull.
Hampinnlegg eru sniðug þar sem þau eru þunn en samt sem áður mjög rakadræg.
Þessi innlegg eru tilvalin í Englabossa vasableiuna til þess að auka enn meira við rakadrægnina, t.d. á nóttunni eða í dagslúrnum.
Bæði er hægt að nota þau með microfiber innleggi, eitt og sér, tvö saman eða jafnvel næst húð barnsins.

Englabossa viscose pappír

Englabossa viscose pappírinn er hægt að setja inn í vasableiuna, næst barninu, til þess að grípa hægðirnar. Honum má svo sturta í salernið þar sem hann er umhverfisvænn og brotnar niður.


Englabambus

Vegna gríðarlegs áhuga viðskiptavina okkar á bambus höfum við ákveðið að láta sauma fyrir okkur nýja gerð af bleium – Englabambus.

Englabambus eru rakadrægar og mjúkar vasableiur. Þær eru að svipaðri hönnun og vasableiurnar en innra byrði þeirra er úr bambus og þeim er lokað með riflás.

Bambus er mjög mjúkt efni sem er einstaklega rakadrægt og notalegt næst húð barnsins.
Með Englabambus fylgir bambusinnlegg sem sett er inn í bleiuna. Bambusinnleggið er afar mjúkt og mjög rakadrægt. Það má einnig fara næst húð barnsins ef svo ber undir.

Englabossavörurnar fást á www.barnavorur.is

Heildsala á Englabossa vörunum

Fyrir kaupmenn sem áhugasamir eru um að kaupa Englabossa vörurnar í heildsölu biðjum við um að haft sé samband við okkur á barnavorur@barnavorur.is

Comments are closed.