Þessari upplýsingasíðu er haldið úti af barnavöruversluninni www.barnavorur.is sem sérhæfir sig í taubleium, meðgöngu og brjóstagjafafatnaði. Verið velkomin í vefversluna okkar, við erum sérfræðingar í taubleium
Til að ná sem bestri notkun úr taubleium hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga
Það sem fyrst þarf að hafa í huga:
Það er ekki það sama sem gildir um öll efni.
Auðveldast er að fást við tilsniðnar bleiur, t.d. bómullarefni í þvotti.
Þvottaleiðbeiningar og meðhöndlun:
Geymsla:
Geymið bleiurnar í þurru íláti (bleiufötu) eða í PUL poka og aðskiljið bleiur og innlegg. Þetta er til þess að það lofti vel um þær.
Hægt er að setja sirka 2 dropa af tee-tree olíu (sem fæst í apótekum) í fötuna með bleiunum, og í fötuna eftir að bleiurnar hafa verið teknar upp úr, til þess að minnka lykt (en slæmt er að nota of mikið því það getur sest í bleiurnar).
Þegar börnin eru orðin eldri og lyktin af þvaginu er orðin sterkari getur verið gott að skola bleiurnar upp úr köldu vatni og kreista þær áður en þær eru settar í fötuna. Einnig getur verið gott að láta bleiur og innlegg sem eru mjög blaut þorna á brúninni á fötunni áður en þau eru sett ofaní.
Sumir kjósa að geyma bleiurnar frekar í vatni. En ekki allir bleiuframleiðendur styðja þá aðferð og virðist hún vera á undanhaldi.
Ekki geyma bleiur úr pul efni í vatni. Þetta er frekar hægt með tilsniðnu bleiurnar. Við mælum þó gegn því með hverskonar bleiur.
Hægðir:
Ef hægðirnar eru harðar er hægt að sturta þeim í klósettið áður en bleian er þvegin. Ef þær eru linar er hægt að skola bleiuna með köldu vatni og kreista úr henni áður en hún er sett í þvott eða geymd.
Ekki er ráðlagt að geyma bleiurnar lengur en í þrjá daga áður en þær eru þvegnar því það getur orðið til þess að lyktin setjist í þær.
Efni sem ekki má nota í taubleiur
Notið ekki mýkingarefni. Mýkingarefnin setjast í bleiurnar og minnka vatnsheldni þeirra. Þetta á við um allar bleiur - líka úr bómull. En getur verið alverst fyrir t.d. flísefni og suede cloth efni.
Notið ekki ljósvirk bleikiefni eða klór. Hvort sem um er að ræða tilsniðnar bleiur eða annarskonar bleiur. Ljósvirk bleikiefni og klór eru óumhverfisvæn efni. Ljósvirk bleikiefni geta sest í bleiuna gert hana minna rakadræga og valdið vondri lykt. Þetta er minna mál með tilsniðnar bleiur en vasableiur, en við mælum gegn þessum efnum í hverskonar bleiur.
Ekki er mælt með hreinni sápu í bleiur.
Ensím (lífhvatar) eru í mjög mörgum þvottaefnum til þess að brjóta upp órheinindi. Þessi efni geta sest fyrir í bleiunum og orðið virk þegar þau blotna. Þau eru ertandi og þegar börn eru með pissublauta bleiu getur það valdið ertingu og útbrotum.
Ensím eru einnig talin slæm fyrir pul efni.
Zeolite eru smáar agnir sem hreinsa vel en eyða fatnaðinum hraðar en efni sem eru án þess. Það getur einnig valdið ofnæmi. Þetta efni ber því að varast í pul efni. Það gæti átt þátt í því að eyða pul efninu fyrr og gera það þannig minna vatnshelt.
Athugið að ekki þarf mikið þvottaefni. Ekki meira en helming þess sem ráðlagt er á pakkanum. Jafnvel getur verið nóg að nota 2-3 tsk. af þvottadufti. Ef notað er of mikið þvottefni getur það safnast upp í bleiunni og gert það að verkum að vatnið renni ekki í gegnum bleiuna, og hún fari að leka (orðið vatnsheld).
Athugið þó að einnig getur verið slæmt að nota ekkert þvottaefni því þá hreinsast bleiurnar ekki nægilega vel. Til að mynda er sýra í þvagi sem ná verður úr bleiunum í þvotti. Ef hún fer ekki úr getur hún safnast upp og valdið ertingu.
Hægt er að setja um 2 dropa af Tee tree olíu eða grape seed extract í mýkingarefnishólfið. En ekki er gott að nota of mikið af olíu. Þetta á við um bleiur með gerviefnum því of mikil olía getur sest í þær og gert þær minna rakadrægar.
Þvottur:
Lokið öllum riflásum áður en bleiurnar fara í þvottavélina. Bleiur sem eru með þvottaflipa geta lokast í þvottaflipann (t.d. Happy Heinys) en bleiur án þvottaflipa skal loka og þvo á röngunni.
Gott er að nota forskolunarkerfi á þvottavélinni til að skola bleiurnar áður en þær eru þvegnar ef hægðir eru í þeim. Einnig er gott að nota auka skolun til þess að ná örugglega öllu þvottaefninu úr bleiunni.
Ekki er þörf á því að sjóða bleiur á 95 gráðum, og það er yfirleitt ekki gott fyrir vatnsheldu PUL efnin (þó svo að sum þoli það). En stundum er gott að þvo bleiurnar tvisvar eða þrisvar í röð, fyrst með þvottaefni, og svo aftur án þvottaefnis. Sjá frekari grein um þetta, Suða bakteríur og taubleiur.
Athugið einnig að það er umhverfisvænt að þvo á sem minnstu hitastigi. Við mælum því með því að þvegið sé á 60 gráðum.
Þurrkun:
Margir segja það gott fyrir PUL efnið að fara af og til í þurrkara til þess að loka því. En vasableiur eru þó mjög fljótar að þorna og því er best að hengja þær til þerris. Sé þurrkari notaður skal hann ekki hafður á heitu.
Sumar bleiur þola ekki þurrkara og fyrirtækið Babyidea ekki með því að Grow hour vasableiurnar séu settar í þurrkara.
Mjög gott er að hengja taubleiur út til þerris þegar mögulegt er. Sólarljósið er náttúruleg aðferð til þess að ná blettum úr bleium.
Náttúruleg efni eins og t.d. hampur verða stífari ef þau eru hengd til þerris. Þessvegna getur verið að þú kjósir frekar að setja þær bleiur og innleg í smá stund í þurrkara eftir að þau eru búin að hanga.
Þurrkari er orkufrekari en þvottavél. Til þess að vera sem mest umhverfisvænn mælum við með því að þurrkari sé notaður í hófi.
Bossakrem og stílar:
Ekki er gott að nota hefðbundin bossakrem undir taubleiu með gerviefnum því að þau innihalda oft efni sem gera taubleiuna vatnshelda. Þá getur verið sniðugt að láta barnið vera án bleiu á meðan það er með kremið. Því einnig er gott fyrir börn að vera án bleiu ef þau eru rauð til þess að lofta um bleiusvæðið. Þess má þó geta að taubleiur valda síður bleiuútbrotum en pappírsbleiur.
Þetta er minna vandamál með tilsniðnar bleiur.
Við mælum með Grandma El’s bossakreminu sem fæst á www.barnavorur.is Það er krem sem má nota samhliða taubleiunotkun og gerir bleiurnar ekki vatnsheldar. Kremið fær mjög góða dóma bæði hérlendis og erlendis.
Stílar geta einnig gert bleiuna vatnshelda.
Þetta er einnig ekki vandamál með bómullarbleiur
Vínedik:
Sumir nota vínedik til þess að ná lykt úr bleium. Framleiðendur vasableia og AIO bleia mæla yfirleitt gegn notkun vínediks í bleiurnar. Við mælum einungis með því að það sé notað í tilsniðnar bleiur og þá mjög vandlega. Sé það notað skal það einungis notað í skolið á vélinni – En ekki í þvottinn sjálfann!
Notið einnig mjög lítið af því. Það virkar eins og mýkingarefni og eyðir vondri lykt.
Athugið þó að mjög margir kvarta einmitt undan því að bleiurnar lykti meira eftir að þeir notuðu vínedik, en margir aðrir eru himinlifandi með það og finnst bleiurnar aldrei hreinni eða lyktarminni. Notið því mjög lítið af því og einungis í tilsniðnar bleiur.
Vínedik og bökunarsódi saman:
Bökunarsódi og vínedik eiga illa saman. Sé það bæði notað skal bökunarsódinn notaður í þvottinn og vínedik einungis í skolið.
Bökunarsódi:
Bökunarsódi hefur lágt ph gildi, um 8,1. Hann er því mildari en þvottasódi. Ég stóð alltaf föst í þeirri trú minni að nota ekki bökunarsóda í taubleiurnar, en satt að segja sé ég enga ástæðu til þess lengur að forðast hann. Hann er mildur en getur samt sem áður fjarlægt óhreinindi og eytt vondri lykt.
Það er sýra í þvaginu sem sódinn (bökunarsódinn og þvottasódinn) ná að jafna út og þannig eyða lyktinni.
Oftast er talað um hálfann bolla í eina vél. Ekki nota meira en það og gott er að byrja á minna.
Fyrsti þvottur
Allar bleiur:
Allar bleiur þarf að sjálfsögðu að þvo fyrir notkun. Mörgum finnst sumar vasableiur ekki góðar fyrr en eftir tvo þvotta.
Hampur og bambus:
Náttúruleg efni eins og hamp og bambus þarf að þvo og þurrka sirka þrisvar sinnum áður en þau eru notuð í fyrsta skiptið. Það skal gert sér og ekki með öðrum bleium. Þetta er gert til þess að ná náttúrulegu olíum úr bleiunum þannig að þær nái hámarks rakadrægni. Athugið að ef þær eru þvegnar með flísbleium í fyrstu skiptin getur það orðið til þess að flísbleiurnar verði vatnsheldar.
Það getur þó tekið hamp upp undir 8 skipti í þvotti til þess að ná hámarks rakadrægni.
Hann verður mjög rakadrægur með tímanum. Hann er þó hægt að byrja að nota eftir 2-3 skipti í þvotti.
Ef bleian lyktar illa
Það gæti verið vegna of mikillar þvottaefnisnotkunar sem safnast hefur upp í bleiunni. Þá getur verið gott að þvo bleiuna aftur og aftur með engu þvottaefni, þar til engar sápukúlur sjást lengur.
Ef sápukúlur sáust lengi í vatninu og bleiurnar verða betri á eftir er best að minnka þvottefnið um amk helming hér erftir.
Það gæti einnig verið vegna of lítils þvottaefnis, og bleiurnar séu þessvegna ekki nægilega hreinar. Þá er gott að prófa að setja aðeins meira þvottaduft og athuga hvað gerist.
Gott er þá að setja bleiurnar í þriggja þvotta prógram (þrjá þvotta í röð), t.d. fyrst með þvottaefni, svo án þvottaefnis og svo aftur án þvottaefnis.
Of langt milli þvotta?
Ef of langt er á milli þvotta geta bleiurnar farið að lykta illa. Gott er að láta ekki meira en 2-3 daga líða á milli þvotta. Ef það er ekki möguleiki er best að skola þær upp úr köldu vatni og vinda áður en þær eru settar í geymsludall/pul poka.
Rúllar þú bleiunum upp þegar þú setur þær í geymsludallinn?
Best er að rúlla þeim ekki upp, eða amk rúlla þeim í sundur áður en þær fara í vélina. Annars getur verið að þær hreinsist ekki nægilega vel.
Þarf að sjóða allar taubleiur?
Við segjum nei, og hvetjum ykkur til þess að lesa greinina okkar um taubleiur, suðu og bakteríur.
Það er óumhverfisvænt að þvo alltaf á suðu, og bleiurnar verða nægilega hreinar á 60 gráðum.
Ef bleian verður „vatnsheld“ – á við um vasableiur og AIO bleiur
Bleiur geta skyndilega ekki orðið nægilega rakadrægar og þá lekið. Þetta getur t.d. orsakast af bleikingarefni í þvottaduftinu, mýkingarefnum, stílum eða bossakremum. Þá þarf að „strípa“ bleiuna.
Að strípa með því að þvo bleiuna extra vel:
Það er best að stípa bleiurnar með því að þvo þær extra vel. Þvo þær fyrst með smá þvottaefni og svo 2-3 sinnum í röð án þvottaefnis.
Bleiur sem má sjóða – er hægt að stípa með því að sjóða:
Þær bleiur sem má sjóða er hægt að strípa með því að sjóða þær. Þetta er þó alls ekki ráðlagt með allar bleiur.
Að strípa með uppþvottalegi:
Það er hægt að gera með því að setja vatn í spreybrúsa og blanda með smávegis af uppþvottalegi. Spreyja lausninni svo á flísefnið/suede cloth efnið/ minkee efnið (efnið sem er vatnshelt), og nudda það vel. Svo skal bleian sett í þvottavélina. Þá skal passa að skola bleiuna mjög vel svo öll sápa náist úr henni. Gott getur verið að þvo hana aftur með engu þvottaefni á eftir.
Þetta er ekki gott að gera oft og passa skal vel að allur uppþvottalögur náist úr bleiunni.

I feel so much happier now I udneratsnd all this. Thanks!