Vefverslun

Velkomin á vefverslun Taubleia.is

Smellið á körfu til að ganga frá pöntun. Karfa

Við höfum hafið sölu á Snuza lífvaktinni. En Snuza lífvaktin er tæki sem vaktar öndun barnsins þín. Snuza lífvaktina er fest á bleiu barnsins og gefur foreldrum kost á að slaka á vitandi að Snuza fylgist með lífsmörkum barnsins. Snuza mælir minnstu hreyfingu á meðan barnið sefur og lætur þig vita ef hreyfingar stöðvast.

Snuza er mjög meðfærilegt og fer hvert sem þú og barnið þitt farið.
Áhyggjulaus – því Snuza vaktar barnið!

* Skynjar hreyfingar barnsins. Jafnvel minnstu andardrætti.
* Einfalt – Þú festir það að á bleiuna og kveikir á því.
* Tækið pípir ef hreyfingar hætta.
* Engar snúrur, engir vírar, engin undirdýna – Snuza getur farið hvert sem er með þér og barninu þínu
* Er hægt að nota með hvaða barnapítæki (sem mælir hljóð) sem er, sé áhugi fyrir slíku
* Hægt er að skipta um rafhlöður í tækinu eftir mikla notkun. Ný rafhlaða endist í sirka eitt ár.

Það mælir hreyfingar barnsins þíns og lætur þig vita ef þær eru daufar eða eru undir 8 hreyfingum á mínútu.
Ef engin hreyfing mælist á 15 sek víbrar tækið. En víbringurinn nægir oftast til þess að örva barnið ef þarf.
Með hreyfingum er hér átt við jafnvel minnstu öndunarhreyfingum, þ.e. hreyfingum sem verða á líkamanum við það að anda.

* pínulítið og er sett innan á bleiu barnsins (hentar bæði fyrir taubleiur og einnota)
* víbrar eftir 15 sek til örvunar
* pípir eftir 5 sek í viðbót (ef barnið sýnir ekki viðbrögð við víbringnum, 20 sek í heildina)
* lætur einnig vita ef hreyfingar eru daufar eða fáar

Tækið passar í lófa og er aðeins 32 grömm.
Það er gert úr öruggum efnum og er CE merkt.
Það er hannað til þess að finna minnstu hreyfingar.

Hvernig er Snuza öðruvísi en barnavaktir með dýnu/skynjara undir dýnu?
Þó svo að báðir mælar skynji hreyfingu á svipaðan hátt eru barnavaktir með dýnu/skynjara undir dýnu ekki eins hreyfanlegar. Snuza er hægt að festa á barnið þannig að tækið mæli stöðugt hreyfingar. Einnig er hægt að geyma það í ferðaöskjunni og er hægt að festa á barnið og nota hvar sem er.

Liggur Snuza upp að barninu?
Snuza er fest á bleiuna og mjúki skynjarinn liggur að maga barnsins nálægt naflanum. Hægt er að hafa þunnt lag af fötum á milli, t.d. samfellu, það er þó algerlega ónauðsynlegt þar sem skynjari Snuza er afar mjúkur viðkomu og veldur barninu engum óþægindum.

Er hægt að ferðast með Snuza?
Já, og það skilur Snuza að frá ýmsum öðrum slíkum tækjum. Snuza þarf ekki að stinga í samband, það eru engar snúrur sem því fylgja og engin dýna. Það getur farið hvert sem er með þér og barninu þínu.

Vara:
Snuza Halo
Verð:
20990,00kr.
Flutningskostnaður:
0,00kr.
Magn:

Snuza Go! er frábrugðið Snuza Halo að því leiti til að það hefur ekki þann eiginleika að víbra ef enginn öndun greinist heldur fer Snuza Go! strax af stað með pípa ef ekki hefur greinst öndun á 15, 18 eða 20 sek. tímabili.

Vara:
Snuza Go
Verð:
16990,00kr.
Flutningskostnaður:
0,00kr.
Magn:

Comments are closed.